þriðjudagur, október 07, 2008

Ég var klukkuð....

Af Dagnýju Ósk vinkonu...Takk Dagný..i owe you one!....;)

Fjögur störf sem ég hef unnið um ævina:
1. Hrafnista í Hafnarfirði: Aðhlynning
2. Fimleikafélaginu Björk: Eftirlit
3. BMS Tölvulausnir: Þjónustufulltrúi
4. Tollstjóranum í Reykjavík: Þjónustufulltrúi
(5. Goldfinger: Fluffer)

Fjórir staðir sem ég hef búið á:
1. Öldutúni, Hafnarfirði
2. Laufvangi, Hafnarfirði
3. Fálkahrauni, Hafnarfirði
4. Áslandi, Hafnarfirði
(5. Hell í 'Stjørdal í Noregi)

Fjórar bíómyndir sem ég held uppá:
1. Juno
2. Accross the Universe
3. Chocolat
4. Desperado
(5.Bridget Jones’s Diarrhea)

Fjórir sjónvarpsþættir sem mér líkar:
1. Fringe
2. Family Guy
3. Dexter
4. Friends
(5. Who´s your daddy? Raunveruleikaþáttur það sem munaðarleysingjar giska á..já..hver er pabbi þeirra)

Fjórir staðir sem ég hef heimsótt í fríum:
1. Portúgal
2. Bretland
3. Bandaríkin
4. Búlgaría
(Bagdad, besta sumarfrí ever)

Fjórar síður sem ég skoða daglega fyrir utan blogg:
1. mbl.is
2. facebook.com
3. rsk.is/tollur.is
4. perezhilton.com
(5.www.womenanddogsuk.co.uk/page2.html)

Fernt sem ég held uppá matarkyns:
1. Lambalæri að hætti mömmu
2. Lasagna-my special recipe;)
3. Lambalundir a la Hafsteinn með svepparagú
4. Indverskur matur
(5.Casu Marzu.....namm...)

Fjórar bækur sem ég hef lesið oft: (Með fyrirvara á orðinu "oft:)
1. The Joy Luck Club
2. Munkurinn sem seldi sportbílinn sinn
3. Englar Alheimsins
4. Þú ert það sem þú hugsar
(5. Danger! eftir Luke Out)

Fjórir bloggarar sem ég klukka:
Sunna Dögg
Lilja Hafdís
Lísa
Hulda

(Biðst velvirðingar á að myndir vantar. Myndakerfi blogspot er bilað...en ég spæsaði þetta aðeins upp svo lesturinn yrði áhugaverðari;)

Ps. Atriði númer fimm er ekki hluti af klukk-leiknum og ekki endilega sann-leikur heldur;)

miðvikudagur, september 10, 2008

The end of mankind (´s common sense?)

Ég, eins og margir aðrir, tóku eftir fréttinni um hraðalinn sem átti að marka endalok mannkynsins. Sem betur fer tók ég það ekki of alvarlega því annars væri ég örugglega búin að eyða 80% af laununum mínum í eitthvað rugl og restinni í dósamat ef ske kynni að við myndum ekki sjúgast inn í eitthvað svarthol heldur eitthvað annað sem kallar á survival. Ekki það, það var mjög freistandi að slá þessu upp í kæruleysi og eyða öllum moningunum en efast um að bankinn myndi sýna skilning á útskýringum mínum daginn eftir “endalokin”.

Ég er því búin að sjá það að maður verður að sýna smá almenna skynsemi þegar það kemur að spám um endalok jarðarinnar. Því það er aldrei að vita nema einhver hafi rétt fyrir sér. Því held ég að það sé ágætt að skoða vel allar dómdagsspár áður en maður velur þá sem maður ætlar að trúa á.




Nýlega kom fram Rússneskur költ, eða trúarhópur, sem er búin að lifa neðanjarðar í einhvern tíma því að þau voru að undirbúa sig undir endalok alheimsins. Ég fór því að hugsa, ef maður ætlar að velja sér trú á dómsdag, verður maður þá ekki að velja vel? T.d er stór költ á bakvið dómdagstrúna? Og er þessi költ vel viðbúinn? Ég meina, er hópurinn með lítinn ljótan helli eða járnsterkt neðanjarðarhýsi? Því að illa útbúið flóttaskýli getur drepið þig og það tekur ansi mikið fútt úr dómsdeginum.

Maður ætti líka að velja költ þar sem leiðtoginn virðist traustvekjandi og viti hvað hann er að tala um og þá væri líka ágætt að hann vissi nákvæma dómdagsdagsetninguna. Annars gætir þú lent í því að sitja í helli í heilan mánuð í engum tilgangi. Ég myndi vilja að reikistjarna myndi lenda á jörðinni akkúrat á sömu mínútunni og ég væri að þurrka fætur mínar á “Velkomin” mottunni við hellarinnganginn. Og þannig gæti líka fólkið sem trúði ekki á mína dómdagsspá, ekki notið eignanna minna sem það hafði af mér áður en ég færi í hellinn. Það myndi varla ná að segja “Vúhú, bjáninn hún Erla gaf mér playstation 3 tölvuna sína” áður en reikistjarnan væri búin að þurrka allt út.

Ef að Hómer segir það, þá hlýtur það að vera satt;)


Stóra vandamálið við að velja dómdagsdagsetningu er að það er svo augljóst þegar þú hefur rangt fyrir þér. Ef að heimurinn springur ekki á þriðjudegi þá er erfitt að taka ekki eftir því. Því vorkenni ég svoldið vísindamönnunum sem spáðu því að svarthol myndi myndast í dag, ég meina, ætli að þeir fái vinnu einhverstaðar framtíðinni?

Sé það alveg fyrir mér, ef að fólk gengur svo langt, að manneskja í einhverjum helli gefist upp nokkrum mánuðum eftir að dómsdagur átti að koma og ákveði að snúa aftur til samfélagsins. Hún fer og sækir um vinnu og í atvinnuviðtalinu er hún spurð út í þessa nokkra mánaða eyðu á CV-inu sínu. “Já, ég eyddi nokkrum mánuðum í helli því að ég trúði því að endalokin væru að nálgast. En ég hef mjög góða dómsgreind”.



Svo er ég líka að pæla, ef þú ert með költ af útvöldu fólki. Ferð og byggir eitthvað skýli og kaupir ótæpilega mikið af dósamat, myndir þú ekki bara þegja um það? Annars færu allir að fela sig í hellum og kannski fullt af fólki ráðast inn í akkúrat þinn helli! Og af hverju vara fólk við, fara með það í blöðin, láta alla vita, bara til þess að líta út eins og asni daginn eftir? Asni í helli með fullt af dósamat. En ég meina, kannski er möguleiki að költ í Mið-Austurlöndunum finni loksins hellinn hans Bin Laden svo það væri einhver árangur.

Eða er þetta kannski samkeppni. Hver er með stærsta költinn og flottasta hellinn. Kannski eru költarnir að hlusta á fréttir af dómdagsspám annars költs og hrista hausinn á meðan og hugsa “Þessi fífl eru með ranga dagsetningu” Og svo eru þeir alltaf að reyna að fjölga í költinum sínum með allskonar beitum. “Komdu í hellinn okkar, við erum með flatskjá og stórt lið kokka”.


Hérna eru svo nokkrar af þeim mörgu dagsetningnum sem áttu að marka endalok mannkynsins.

1 Janúar 2000. Þá áttu tölvur að hrynja ásamt öllu efnahagslífi og þar með heimurinn eins og við þekktum hann. Miðaldarhættir yrðu alsráðandi aftur.

5 Maí, 2000. Pólskipti myndu eiga sér stað í kjölfari þess að pláneturnar myndu raðast upp í beina línu. Þetta myndi hafa hörmulegar afleiðingar fyrir jörðina og mannkynið. Frægastur þeirra sem hélt þessari kenningu fram var Richard Noone.

Ein Marilyn Agee er allavega þrisvar sinnum búin að spá fyrir endalokum alheimsins út frá vísbendingum í Biblíunni, þann 11. júní 2000, 28 maí 2001 og 21 maí 1999.

14 April 2002 spáði Mike Keller að hálfri sek. Fyrir miðnætti myndi dómdagshliðið opnast, Jesús myndi birtast fylgjendum hans og kjarnorkustríð myndi byrja 45 dögum sienna, pólskipti og almennar hörmungar.

2004 átti Kristur að birtast og í kjölfarið átti mannkynið að farast, allavega þeir syndugu. Þessi spá var byggð á greiningu á pýramídanum í Giza.



1998-2012. Á þessum árum á að hefjast atburðarrás sem mun ljúka með dómsdegi þann 21.12.2012. M.a. eiga að koma miklir öfgar í veðri, þurr og heit sumur með miklum stormum og erfiðir vetrar. Þessu myndi svo ljúka með pólskiptum þann 21.12. Annar snúningur á þessa spá er að önnur pláneta, eða Nibiru, sé að nálgast vetrarbrautina okkar og muni koma inn í hana árið 2009. Eftir því sem hún nálgast því heitara verður og meiri ofsar í veðri, fljóðbylgjur og jarðhræringar. En það sem á s.s að gerast þegar Nibiru nálgast jörðu er að hún á að valda svo miklum breytingum að pólskipti verða á jörðinni. Þessi spá er að stóru leyti byggð á dagatali Maya.

Miðað við umfangið á þessari síðustu spá (það eru örugglega milljón myndbönd á Youtube, greinar á netinu og what not um hvað eigi að gerast þennan dag og hvernig eigi að undirbúa sig) þá get ég rétt ímyndað mér, ef spáin reynist ósönn, að nokkrir einstaklingar eigi eftir að sitja í köldum helli þann 22.12.2012 og sjá eftir því að hafa ekki bara haldið upp á jólin.

Ég lýk við þessa færstu með myndbandi sem er vel við hæfi;)



Ég mana ykkur til að læra textann af laginu og ná að syngja það allt:)

föstudagur, ágúst 22, 2008


Langaði bara svona að deila því með einhverjum;)

mánudagur, júlí 21, 2008

Afmælisbarn dagsins er...

Lena!

Hún er ein elsta vinkonan mín. Þá meina ég ekki: "eldgömul og over the hill" heldur sú vinkona mín sem ég hef þekkt lengst:)

Ég man ekki hvernig við urðum vinkonur, ég man bara að þegar ég flutti á Laufvanginn þegar ég var 7 ára þá eignaðist ég fljótt hana sem vinkonu.

Ég man hvað hún kunni flókinn orð. Hún las svo mikið og var með gríðarlegan orðaforða. Stundum skildi ég ekki orðin sem hún notaði og mér fannst það svakalega flott.

Ég man líka hvað hún fékk alltaf mörg páskaegg og hvað ég öfundaði hana þess vegna að eiga "tvö pör af foreldrum" því það þýddi að hún fékk páskaegg frá þeim báðum. Auk þess fékk hún frá ömmu sinni og afa minnir mig. Hún braut þau niður og geymdi í poka og átti pokann fullan af páskaeggjum löööööngu eftir páska.

Við vorum alltaf bara tvær að leika. En það skipti engu máli:) Okkur fannst t.d rosa gaman í snú snú. En það er svoldið erfitt þegar það eru bara 2 í snú snú en við leystum það. Við bundum annan endann á sippubandinu við ljósastaur og vola, málið leyst!:)


Ég man líka hvað ég varð sorgmædd þegar hún flutti með mömmu sinni til Vestmannaeyja. Ég var ca. 9 ára og mér fannst heimurinn vera að endi kominn. Við skrifuðumst á en ég var ekki sú duglegasta að halda því gangandi:s

Ég heimsótti hana til eyja þegar ég var ca 13 ára. Þá var hún orðin svaka gella á gelgjunni meðan ég var aðeins "á eftir";) Hún kynnti mér t.d. fyrir þessu nýja gellulega stelpnabandi sem hún hafði kynnst út í Bretlandi. Hljómsveitin hét Space girls. Þegar ég kom svo heim eftir dvölina hjá henni þá sá ég í sjónvarpinu myndbandið af laginu "if you wanna be my lover" sem við höfðum hlustað svo mikið á og sá þá að ég hafði aðeins misheyrt nafnið á hljómsveitinni;)

Þegar ég var ca 18 þá var ég að stimpla mig inn í vinnunni, þá var ég að vinna á Hrafnistu. Og hvern hitti ég ekki við stimpilklukkuna heldur en Lenu. Vandræðalega hæ kom frá manni og ég vissi lítið hvað ég ætti að segja við þessa vinkonu sem ég hafði ekki hitt síðan í heimsókninni til eyja.

Svo þegar skólinn hófst í Flensborg þá kom í ljós að hún var einnig byrjuð þar og við lentum saman í félagsfræði. Þar sátum við saman og fljótt fór vandræðagangurinn á manni að breytast því við vorum innan skamms farnar að spjalla saman eins og bestu vinkonur og ekki var á okkur að sjá að við hefðum lítið talast saman frá því að hún flutti til eyja.

Í dag á hún afmæli og í tilefni þess fær hún blogg um sig frá mér...bara af því henni langaði svo í það;) Svo Lena, bannað að skamma mig, þú vildir þetta;) Þetta er líka örugglega í fyrsta skiptið síðan við kynntumst sem ég man eftir afmælinu hennar á sjálfan afmælisdaginn sem er afrek út af fyrir sig og ég varð því að fá að flagga því;)

Og svo ég taki væmnina á þetta í lokin: Eftir næstum því 20 ára vináttu þá er ég ekki ennþá komin með leið á þér...nei djók!

Án gríns, þú ert æðisbiti með alla þá bestu eiginleika sem vinkona getur innihaldið! Alltaf get ég talað við þig um allt og húmorinn á réttum stað;)



Skál fyrir næstu 20 árum!;)







þriðjudagur, júlí 15, 2008

Þetta blogg er tileinkað...

Jools!

Jools aka Viktoría er gæðaskinn. Hún er fyndin og ég get hlegið endalaust að og með henni sem lífgaði svo sannarlega upp á vinnudaginn. Hún benti mér til dæmis á þennan mann. Hvar væri ég ef ég hefði ekki vitað af honum. Ég meina, svona er bara priceless!

Hún benti mér líka á mikinn speking og að hans þeóríum hef ég mikið gagn og gaman af. Viskuperlur eins og :

"
Aðgangur að opinberum stofnunum er alltaf að verða betri sem er mjög mikilvægt svo allt þetta þroskahefta fólk sem starfar við að svara í símann á þessum stöðum komist í vinnuna."

og:

"Evróvision er eins og að prumpa. Fyrst spennist fólk upp af eftirvæntingu en fljótlega sitja allir eftir í skítafýlu."

og:

"Mikilvægt skref væri stigið í réttindum samkynhneigðra ef að hommum væri leyft að giftast lesbíum. "

Þau sem vilja kynna sér fleiri málefnaleg og spekingsleg rit þessa manns geta kíkt hingað

Nú, hún kann líka að meta góða hluti eins og ég. Sumt af því er t.d bjór, make-up, fyndið fólk, skondnar setningar og mikilvægast af öllu, hlátur. En eitt af því besta er þó að hún hefur gaman af blogginu mínu! Því langar mig að tileinka þetta blogg henni:)

Ég og Jools á góðri stundu...svona næstum..

Eins og annar góður spekingur sagði þá kemur að því að allir góðir hlutir taka enda. Að því kom að skildust leiðir þegar hún fékk aðra vinnu. Fyrst leið mér eins og ég hafði verið skilin eftir heima eins og Macaulay. Þegar fólk kom í afgreiðsluna til mín þá var ég nákvæmlega svona á svipin því örvæntingin var mikil.

En tíminn læknar víst öll sár og ég fékk líka smá áfallahjálp frá öðrum góðum vinnufélögum. En það koma dagar og tímar þar sem ég sit hérna ein á kantinum í básnum mínum í vinnunni og raula þetta lag.

Það er bara verst þegar ég stend mig að því að syngja það upphátt, sérstaklega viðlagið. Það er svoldið vandræðalegt svo ég orði það fallega.

Vicky, this one is for you;)




sunnudagur, maí 04, 2008

Ég hjarta...

Þemapartý! Just love it! Fílaði mig í tætlur á Öskudögum þegar ég var yngri en eftir að ég komst í fullorðinatölu þá hef ég bara fengið eitt tækifæri til að fara í þykjustunnileik;) Það var þegar ég og Hafsteinn héldum 80´s partý fyrir tvem árum síðan. (ég reyndi að finna myndir en engar voru birtanlegar;)

Núna hef ég fengið tækifæri nr. 2! Let the fun begin!

Í næstu viku hefjast tuskudagar í vinnunni. Í rúma viku verður tekið til, losað sig við gamalt pappírsdrasl og gert allt sjæní. Einnig velur hver deild sitt þema og undirbúa aðaldaginn.


Á aðaldaginn mæta allir í búningum eftir að hafa skreytt deildirnar okkar með viðeigandi skreytingum. Og eins og ég sagði þá er hver deild með sitt eigið þema og svo er keppt um hver á besta þemað. Sérstök dómnefnd fer á milli deilda aðaldaginn, vegur, metur og velur svo bestu deildina.

Dagurinn endar svo með stóru grilli og drykkjum á þaki hússins:)

Skrifstofudeildin okkar hefur unnið síðustu 3 ár. Ég hef skoðað myndir frá síðustu árum og jú, þau mega eiga það að þau áttu verðlaunin skilin;) Góð þemu og sem dæmi þá var veiðiþema hjá þeim í fyrra. Allir mættu í veiðibúningum og meðan dómnefndin rölti um deildina þeirra þá tóku þau fram litla uppblásna sundlaug, fylltu hana með vatni, settu gerviendur í kringum hana, tóku fram sólstóla og þóttust vera að veiða. Mín deild var með Hawaii þema:)




En nú mun þetta breytast. Nú er innheimtudeildin með nýtt leynivopn. They have Me!! Djók!;)
Það er búið að velja þemað fyrir deildina okkar í ár. Þessa helgi fór ég og keypti "nokkra" hluti sem smellpassa við þemað og hef líka verið að sauma og stöffast. Vantar núna bara eitt til að setja punktin yfir i-ið. Ég er líka svo heppin að það eru allavega tvær girlís að vinna með mér sem eiga þennan skipulagningar-áhuga-spenning sameiginlegan með mér svo þetta er extra fun!:)
Erum komnar með alveg helling af hugmyndum varðandi þemað og allt þetta verður útfært og spögulérað næstu tvær vikur.

Svo, þann 16.mai, verður öllu flaggað! Omg, get ekki beðið. Því miður get ég ekki sagt ykkur þemað því maður veit aldrei hver getur lesið þetta og hinar deildinar mega ekki vita þemað því annars gætu þau skemmulagt, þetta er alvöru keppni sko (set á mig gamefacið) ;)




Þið sem eruð ógesslega forvitin megið endilega koma og kíkja á mig í vinnuna þann 16.mai. You will be in for a treat;)

fimmtudagur, apríl 24, 2008

Ásamt því að færa ykkur mínar bestu óskir um:

Gleðilegt sumar






Langaði mig að óska Hugrúnu og Jóni Inga

Til hamingju með litla drenginn:)



sunnudagur, apríl 20, 2008

Stupid is as stupid does....

Ég heyrði um daginn um frekar sérstök verðlaun sem eru veitt þeim sem deyja á furðulegan, já og heimskulegan hátt. Þau heita Darwin verðlaunin. Spurning hvort að einhver hafi einhverntíman geta farið og tekið á móti verðlaununum sínum?;) En já, þetta er frekar spes og að mínu mati áhugaverð verðlaun og ákvað að kíkja aðeins á nokkra af sérstökustu "vinningshöfunum". Það er svoldið erfitt að hlægja ekki af sumu....:S





T.d var einn sem lést að völdum kókvélar. En það var sem sagt óheppin gæji sem að var að reyna að ná kókflösku sem hann hafði greitt fyrir út úr vélinni en það gekk víst ekki alveg nógu vel. Herlegheitin enduðu s.s. á því að kókvélin datt fram fyrir sig og ofan á aumingja þyrsta manninn.



Í Illinois árið 1993 var lögreglumaður að sýna öðrum starfsfélaga sínum hvernig félagi þeirra í lögreglunni hafði óvart drepið sig með því að endurleika slysaskot sem hafði s.s orðið félaga þeirra að bana. En hinn 20 ára lögreglumaður hafði gleymt að tæma .357 Magnum byssuna sína og endaði á því að endurleika atburðinn í orðsins fyllstu merkingu. Hann lést í bílslysi þegar hann var að keyra sjálfan sig á spítala vegna skotsins.

Í Arizona árið 1982 var það orðið það mikið vandamál með að menn voru að skjóta á kaktusa sem æfingarskotmörk að Arizona ákvað að banna þetta sport og sekta fólk um 100.000 dollara ef það væri staðið að því að stunda það. En það stoppaði ekki hinn 27 ára gamla David sem var að reyna að hrífa vini sína þegar hann hóf skotárás á kaktus sem endaði á þann hátt að eftir að hann hafði skotið tvem skotum á kaktusinn þá féll hinn 23 feta kaktus fram fyrir sig og ofan á David. Áiiii!

Í Florida 1991 fannst flak af lítilli einkaflugvél ásamt flugmanni og nemenda hans eftir nokkra leit. Flugmaðurinn hafði s.s verið að kenna konu einni að fljúga. En parið fannst í þeirri aðstöðu að augljóst var hvað gengið hafði á áður en flugvelin hrapaði, var s.s. parið greinilega of upptekið af öðrum málum en að fljúga vélinni. Það sem fólk gerir til að komast í Mile high Club...spurning hvort að Durex muni selja núna fallhlífar með vörum sínum...


Wayne Roth, 38 ára, steig inn á bar í Pennsylvaniu, pantaði sér bjór og byrjaði að grobba sig af því að hafa lifað af slöngubit. Barfélagar hans hvöttu hann til að fara til læknis til þess að láta nú kíkja á sig en Wayne svaraði: “ég er karlmaður, ég get höndlað þetta” og taldi þar sem hann væri enn lifandi eftir bitið þá hefði hann engu að kvíða. Eftir þriðja bjórinn var hann látinn en slangan sem hafði bitið hann gefur sem sagt frá sér hægvirkandi eitur.

Í New Jersay árið 1998 lést 29 ára gamall maður eftir að hafa kafnað á strippstað. Við krufningu fannst geirvörtuhyljari (sjá mynd) í koki hans.


Í Kanada árið 1998 var maður að undirbúa sig fyrir grímuball sem hann ætlaði á ásamt kærustu sinni. Hann ákvað að fara sem múmía og keypti sér bómullarlengjur í miklu magni. Svo límdi hann bómullinn á hvít föt og setti á sig hvíta hanska til að fullkomna útlitið. Meðan hann beið svo eftir að kærastan sín væri tilbúin ákvað hann að kveikja sér í sígarettu...ég held að við þurfum ekki að spyrja að leikslokum...

Í Georgiu árið 1999 var píparinn Fred Brooks að reyna að finna stíflu sem teppaði allt vatn í holræsi. Í flýti sínu gleymdi hann að setja viðvörunarmerki ofan á holræsagatið svo þegar hann var á leið upp eftir að hafa fundið stífluna og hafði rétt stungið upp höfðinu, kom bíll aðþjótandi...that gotta hurt!!!



Og ástaratlotin hafa tekið fleiri líf en líf flughetjana hér að ofan en í Mexíkó árið 1999 hlakkaði hinum 23 ára Perez Diaz til þess að njóta rómantískra atlota með Ana María í bíl sínum. Hann lagði bílnum í vöruhúsi og hafði bifreiðina í gangi til að geta haft loftkælinguna á. Paríð lést úr koltvísýringseitrun.

Í Þýskalandi árið 1999 lést sverðgleypir í Bonn eftir að hafa reynt að gleypa regnhlíf...og óvart ýtt á takkann sem opnaði regnhlífina.

Og síðast en ekki síst má nefna tvo bændur sem voru á leið á bar bæjarins. Á leið sinni á barinn ákváðu þeir að gera mjög sniðugan “djók” og stoppuðu pick-upinn sinn til að færa viðvörunarmerki af þeirri hlið vegarins sem að miklar vegaframkvæmdir áttu sér stað yfir á hinn hluta vegarins sem var opinn fyrir umferð. Fóru þeir svo góðu hliðina á veginum áfram á barinn. Ekki er vitað hvort þeir höfðu bara gleymt prakkarastrikinu eða voru bara orðnir of fullir til að muna eftir þessu en á leið heim um nóttina létust þeir eftir að hafa keyrt á ofsahraða yfir “lokuðu” hlið vegarins með þeim afleiðingum að trukkurinn lenti ofan í stærðarinnar holu...


föstudagur, apríl 04, 2008

Leikjastöð númer þrjú...

Það er alveg ótrúlegt hvað hlutirnir stundum ganga upp hjá manni. Kemur ekki oft fyrir að maður sé heppin eða sleppi vel frá hlutunum. En það gerðist í morgun.

Fór inn á erlenda síðu sem selur vandaða skó fyrir skynsamlegt verð (ólíkt því sem gerist hér á ísalandi) Hef kíkt þangað inn annað slagið eftir að ég pantaði stígvél þaðan um daginn sem hafa reynst mér afar vel. Sá svo í morgun flótt stígvel á 50% afslætti. Áður en ég vissi var ég búin að fá email með staðfestinu á pöntun :S

Samviskubitið byrjaði svo að naga mig. "Ég hefði kannski átt að tala við Hafstein fyrst" Fór að plotta afsakanir sko. Datt í hug að bera við minnisleysi (sem var næstum því rétt;) Eða segja að þetta hafi verið einhver mistök. Ja eða sannfæra hann um að mér viiiiiirkilega vantaði önnur stígvél;) Ekki það, hann tekur alltaf vel í það þegar ég ætla að kaupa mér eitthvað, þarf bara smá "sannfæringu" áður en jáið kemur:D
.


En hálftíma síðar hringir síminn minn og minn heittelskaði var hinum meginn á línunni.

"heyrðu elskan" Sagði hann "ég er búinn að kaupa Playstation 3. Fékk hana á svo rosalega góðu verði að ég gat ekki lengur setið á mér".

Minn bjóst örugglega við öðrum viðbröðum en:

"Já, frábært ástin mín, þetta er þá líklega góður tími til að segja þér að ég keypti mér ný stígvel áðan"

Já, alveg frábært hvernig hlutirnir ganga stundum upp;) Nú er reyndar bara spurning hvort að fjármálin okkar muni ganga upp með þessu framhaldi...heheheheh....;)

Annars langaði mig að sýna ykkur svoldið. Ég var um daginn að horfa á myndina "The way we were" frá árinu 1973 með Robert Redford og Barbra Streisand. Frábær mynd, ekta svona: "stelpu-gráti-gleði-mynd";) Nema það allan tímann sem ég horfði á myndina þá fannst mér ég vera að horfa á mynd með Brad Pitt. S.s ég tók eftir því hvað ungur Redford og Pitturinn voru sláandi líkir. Svo ég fór á stúfana og fann nokkrar myndir sem ég svo "Paintaði" saman;) Þetta var afraksturinn:



Finnst ykkur þetta ekki merkilegt? Það er eins og Pitturinn sé óskilgetin sonur Robba. Og fyndið að það voru til þessar myndir af netinu af báðum sem bara svona smellpassa saman. Spúkí;)


Annars gæti ég ekki verið ánægðari með að helgin sé að koma. Ekki það að það sé eitthvað spennandi í gangi um helgina. Eina sem er á planinu er að taka íbúðina í vorþrif. Allir dugnaðarstraumar, orkustraumar og hvatningar eru vel þegnar;D


Knús knús mæ beibís:D

fimmtudagur, mars 27, 2008

Skil ekki alveg...

Af hverju þeir ætla að stöðva umferð almennings til að mótmæla háu olíugjaldi? Finnst það vera eitthvað svo misplaced mótmæli...

http://www.visir.is/article/20080327/FRETTIR01/80327074

Minnir mig á önnur misheppnuð mótmæli. Það var einhver sem skuldaði einhverja hundraðkalla í skatt og vildi mótmæla háum sköttum. Þessi aðili ákvað að gera það með því móti að fara út í banka, skipta peningunum sínum í eina krónur og borga gjaldið með bara 1 krónum svo að gjaldkerinn sem tæki á móti peningnum fyrir hönd ríkisins yrði að eilífu að telja það.

Svo manneskjan fór út í banka og þegar maður kaupir svona mikið af klinki þá fær maður það í stórri fötu. Þessi manneskja fékk klinkið sitt í fötu og þrammaði svo til gjaldkera hiðs opinbera og ætlaði sko að láta heyra í sér því hann hafði talað við fjölmiðla og látið þá vita af þessum mótmælum sínum.

Skellir svo fötunni á borðið með ánægjuglottið til beggja átta....

Nema það að manneskjunni hafði láðst að fjarlægja innsigli bankans af fötunni svo það var alveg vitað hversu mikið klink var í fötunni...hvað getur maður annað sagt en úps...hehe...

En já, vonandi að þessi mótmæli færi almenningi eitthvað annað en nokkra reiða menn í umferðarteppu í ártúnsbrekkunni kl 15 í dag....

Muniði eftir því þegar maður var ungur og nýr í umferðinni og bensínlíterinn kostaði 97 kr.-? Sweet old days...;)



sunnudagur, mars 23, 2008

.

GLEÐIKONA Í HÁSKA!!!!


djók...




GLEÐILEGA PÁSKA!!!!!





mánudagur, mars 17, 2008

here kitty kitty kitty....

Ég er að passa kött. Hún heitir Birta. Hún er voða sæt. Hún er svört með brúnum skellum hér og þar. Og hún er ósýnileg.

Ég er ekki að grínast. Ok, trúiði mér ekki? Ég skal segja ykkur hvernig síðustu tveir sólarhringarnir hafa verið hjá okkur! ;)

Seinnipartinn á laugardaginn: Mamma hennar og Pabbi koma með hana til okkar. Erla litla varð voða spennt en bjóst samt við því að kisa myndi vera feimin og fela sig undir rúmi eins og hún hefur gert þegar hún hefur verið í pössun en nota bene, hún hefur aldrei verið í pössun hjá okkur.

En ótrúlegt, allt gengur vel. Hún meira að segja skoðaði sig um íbúðina og foreldrar hennar voru alveg hlessa á þessu hjá henni. Hún kom fram, mjálmaði á okkur, strauk sér upp að fótunum mínum og var rosa blíð og góð:) Við komum henni vel fyrir, settum upp dallana hennar undir litla borðið í eldhúsinu, settum upp baðherbergið hennar með kattasandinum inni á baði, settum litla sæta húsið hennar við svalarhurðina og lyftum upp rúllugardínunum svo hún gæti séð út. Voða kósý:)

Svo fóru foreldrar hennar og hún kom sér fyrir undir rúminu okkar og við ákváðum bara að leyfa henni að vera þar:) Fórum að horfa á mynd inní herbergi og fljótlega fórum við að heyra í henni rannsaka íbúðina, fara á klósettið og fá sér að borða, voða gaman hjá henni:) Svo ætluðum við að fara að sofa um 1:30 og sáum hana hvergi í íbúðinni. Kíktum undir rúm og kisi ekki þar. Fór þá bara fyrir forvitnissakir að litast um eftir henni en hvergi sást kisi. Sá þá, mér til mikillar mæðu, að baðherbergisglugginn var opinn.


Neeeiiii!!! Kisi slapp!!!

Sko, ekki er sá gluggi nú stór og opnast ekki mikið, svona mesta lagi 13 cm. En mín gerði strax ráð fyrir að kötturinn hafði nú náð að troða sér út. Svo ég dreif mig í útiföt og hljóp út meðan Hafsteinn leitaði í allri íbúðinni. Skimaði í kringum mig úti og kallaði á köttinn. En ekkert svar, enda þó hún hefði heyrt í mér þá hefði hún örugglega ekki viljað svara svona "ókunnugri" manneskju. Eftir mikla leit bæði inni og úti og engin ummerki um kisa, var ekki annað í stöðunni en að hringja í foreldrana kl 2 um nóttina en þau voru á leið í flug kl 7:(

Eftir smá stund kom pabbi Birtu, Bjarni frændi og byrjaði að leita að henni úti. Og við leituðum og leituðum og ekkert gekk. Svo, um kl 3, ákváðum við að fá okkur bara sæti inni heima og ræða hvernig ég ætti að auglýsa eftir henni og hvar hún væri skráð og svona. Neinei, heyrist þá bara ekki mjálm inni í íbúðinni. Svo við dreifðum okkur um íbúðina og höfðum eins lágt og við gátum. Þá heyrðist mjálm frá rúminu okkar. Svo allt var rifið af rúminu og rúminu snúið við. Var kisi þá ekki búin að troða sér í gegnum gat sem var gert í kringum miðjufót á rúminu og var s.s INNÍ
RÚMINU!!! hahaha....



I got ya!!!

Svo Bjarni og konan hans gátu farið í flug viss um að kisan þeirra var í "öruggum" höndum;)

Svo ákvað ég, þar sem ég þorði ekki að leggjast í rúmið með köttinn inn í því, að taka dýnurnar fram. Svo við bjuggum um okkur í stofunni, voða gaman:) Vorum nýsofnuð þegar kisi ákveður að koma fram, fá sér að borða, fara á klósettið og leika sér. En mér þótti bara gott að heyra í honum, því þannig var ég fullviss að hann væri inní íbúðinni.

Vöknum á sunnudagsmorgun og engin merki um kisa. Fullvissuðum okkur að hann væri ekki inni í rúminu og lokuðum fyrir hliðarnar á rúminu svo hann kæmist ekki undir aftur. Svo líður sunnudagurinn og ekkert heyrist í kisu. En ákváðum að láta það ekki á okkur fá þar sem nú var ansi ljóst að hún væri algjör Houdini. Svo verður kl átta um kvöldið og þá er Erla litla orðin ansi áhyggjufull og paranojuð. "Hvað ef hún hljóp út áðan þegar Hafsteinn fór út með ruslið" Svo mín fer að leita. Og leita alls staðar, bakvið allt, undir allt, ofan á allt! Um kl 21 ákveð ég að slökkva öll ljós, leggjast upp í rúm og athuga hvort hún komi ekki fram.


You cant find me, nananabúbú!!!

Kemur mín ekki lallandi út úr tölvuherberginu! Hvar í and**** hafði hún verið þar inni! Ég er að tala um, ég leitaði alls staðar!! En ok, við lokum inní tölvuherbergi og hún kom sér vel fyrir í baðinu okkar! Það var frábært, þá vissi maður hvar hún væri:)

Svo í nótt, rétt eftir að við sofnum, fer mín aftur á stjá og leikur sér í alla nótt. Voða gaman:) ég kem svo fram í morgun, engin kisi!! Skima aðeins eftir henni því það eru ekki margir staðir til að fela sig í stofunni eða baðherberginu sem eru einu staðirnir sem hún getur verið á. En by now, er ég farin að sætta mig við það að þessi köttur er endurfæddur Houdini svo ég hef ákveðið hætta að reyna að skilja þessi töfrabrögð.

Rétt í þessu fékk ég svo sms frá Hafsteini sem segir: "Mjá í húsi sínu!:)" Finally, tveggja daga aðlögun og núna loksins getur hún haft það kósí í húsinu sínu:D

En þetta verða ansi áhugaverðar 2 vikur meðan hún gistir hjá okkur. Ætla að endurskýra hana Houdini meðan hún er hjá okkur. Það skiptir hvort sem er engu máli hvort ég kalla hana réttu nafni eða ekki, hún kemur hvort eð er ekki, þó ég múti henni með nýsoðnum fiski;)



fimmtudagur, mars 06, 2008

Bylting!

Ég er komin á breytingaskeiðið....

Langaði svo að breyta til en fannst Blogger með svo takmörkuð layout. Svo ég ætlaði að færa mig yfir á Xblogg.is en var ekki alveg að fíla mig þar. Svo mín fór á stúfana, fann nýtt look og lagfærði html kóðana. Lítur þetta ekki bara vel út;)

Svo, Blogger, þú færð að eiga mig aðeins lengur;)


Vive la Blogger!

fimmtudagur, febrúar 21, 2008

Ég man....

....þegar að bróðir minn fæddist...ég gisti heima hjá ömmu og afa og svo kom pabbi og sagði mér að ég ætti lítinn bróður. Ég var alsæl!:)

....þegar að hann var varla farin að labba, að eina nóttina hann skreið inn í herbergið mitt og rústaði því...ég er ekki að grínast, dótið mitt út um allt og litla krílið náði meira að segja að kreista lítil blekhylki (eins og maður notaði í den) á gólfið. Það var aaaaallt út í bleki! Og í miðju herberginu/draslinu var lítill gutti, sofandi á maganum, með bossann upp í loftið:)



....þegar hann var orðin nokkra mánaða gamall og var ekki ennþá komin með hár og ég söng alltaf: "Arnar Már, með ekkert hár".

....að hann var alltaf að nota dótið mitt, þó að ég væri akkúrat að nota það. Ef ég vildi fá það til baka og hann vildi ekki gefa það og grét þá sagði mamma alltaf: "æ, leyfðu honum að leika sér með þetta". Þarf ekki að spyrja að eins stór systir var ansi pirruð á því;) Einn daginn fékk ég t.d nýjan sundbolta og honum fannst ofsalega gaman að leika sér með hann því hann gat lagst ofan á hann og hálf rúllað sér til og frá. Nema það að afprýðisama systir hans var ekki par ánægð með þetta og sparkaði í boltann sem rann undan honum og minn datt beint á hausinn...hann ber þess ennþá merki með litlu öri á enninu....:(

.....að hann notaði hvaða tækifæri sem hann gat til að læðast inn í herbergið mitt, opna gluggann og henda öllu því sem hann komst í og passaði í opnanlega fagið í glugganum út um gluggann. Svo oft kom ég að blokkinni heima með fínu stytturnar mínar og dótið mitt mölbrotið á stéttinni fyrir neðan...Enda á ég ekkert dót frá því að ég var yngri í dag..;)

...þegar það hvarf 500 kall úr hillunni í herberginu mínu (sem var þá frekar mikill peningur). Og ég fór að leita en sá þá út um gluggann litla bróa með kúfullan nammipoka í höndunum í rólunum. Þegar ég kallaði hvort að hann hefði stolið peningnum mínum fékk ég svarið: "nóp". Riiiiiiight!!!



...að ég var hundskömmuð þegar ég var c.a. 13 ára gömul fyrir að kyssa spegilinn í anddyrinu með varalit. Ég þverneitaði fyrir það en sönnunargögnin voru sterk, kossarnir voru akkúrat í minni hæð. Það er svona c.a ár síðan að bróðir minn viðurkenndi loksins að hafa ná sér í stól, sett á sig varalit og kysst spegilinn svo að ég yrði skömmuð....clever little bastard!:)

....þegar hann og vinur hans þóttust vera barnabarn einhvers á Hrafnistu til að geta rölt á milli herbergja og snýkja nammi...Getið þið ímyndað ykkur?: "ohh...hvað þið eruð sætir, hérna, fáið ykkur nammi" Aaaalveg sko!!....:)

...að alltaf þegar hann fékk að ráða hvað væri í matinn þá valdi hann fisk, baaaaara af því að hann vissi að ég þoldi ekki fisk enda fékk maður fisk á næstum því hverjum einasta degi þegar maður var að alast upp. Enda eigum við bæði erfitt með að borða fisk í dag eftir þennan fisk-overdose;)

....þegar ég hefndi mín og þóttist vera dauð inní eldhúsi. Bróðir minn var að leika sér með vini sínum inní herbergi og ég var að útbúa brauð handa okkur með tómatsósu og osti. Fékk þá snilldar hugmynd að ata mig út í tómatsósu, setja hníf í hendina mína, legggjast á gólfið, öskra og þykjast vera dauð...sem hræddi bróður minn næstum til dauða...Who said revenge was not sweet?;)



....þegar í einu af þeim fjölmörgu skiptum sem ég var að passa hann og hann var sjálfum sér líkur í erfiðleika að ég ákvað að endurgjalda erfiðleikan með því að vera nasty. Og sagði honum að hann væri ættleiddur. Hann trúði mér ekki en ég bar upp sterk sönnunargögn...mamma, pabbi og ég erum með brúnt hár...hann með ljóst hár...Gleymdi því miður bara að leiðrétta þetta:( Með þessu plantaði ég svakalegu korni því innst inni þá velti hann sér þessu alltaf fyrir sér...þar til að hann var orðin nokkuð stálpaður og sá mynd af pabba þegar pabbi var lítill en þeir gætu verið tvíburur;)

...þegar ég var að læra undir próf í framhaldskóla og þurfti hljóð til að geta einbeitt mér...nema í herberginu við hliðina á mér heyrðist ..............búm.............búm.............búm.............búm........... Ég stóð upp, rauk inn í herbergið hans og sá að hann var að kasta bolta í vegginn sem lá að mínu herbergi, leit reiðilega á hann og sagði:"Hættu þessu, ég er að læra!" Fór inn og hélt áfram að læra. Eftir varla eina mínútu heyrðist þá ..búmm..búmm..búmm..búmm.. (hraðinn bara jókst!)

....þegar ég flutti að heiman þá af einhverjum furðulegum ástæðum breyttist allt og litli brói var ekki lengur pirrandi og leiðinlegur, heldur elskulegur og góður. Og allar þessar sögur eru ekki lengur sagðar af pirringi heldur með bros á vör og eru orðnar hlýjar minningar....jaaa, dæmi hver um hlýleika þeirra;)

....alltaf eftir afmælinu hans og í dag er hann 18 ára. Ótrúlegt en satt! Þessi litli, óþolandi, pirrandi krakki er orðin að góðum, duglegum og skemmtilegum fullorðnum bróður;) Ég er stolt af þér litli bró, eigðu rokkandi afmælisdag!

Til hamingju með afmælið! Lov'ya ;*

miðvikudagur, febrúar 06, 2008

They wanna send me back to rehab but I vote..no..no...no

Já, ég þarf að játa svolítið. Ég skammast mín svoldið fyrir það og því held ég að það sé komin tími á að viðurkenna þetta og takast á við það. Svo here goes:

"Hæ, ég heiti Erla Anna og ég hlusta á FM957!"

Allir: "Hæ, Erla Anna!"

Það er því víst að þá hlusta ég á Zúúper á morgnanna. Þau fá mig stundum til að hlægja í þessum morgunþætti, viðurkenni það nú fyrst að ég er byrjuð á þessari dirty laundry sýningu;) Sem er nú ágætt, það er gott að byrja daginn á því að hlægja;)

En enginn fær mig jafn mikið til að hlægja og ein kona góð sem hefur hringt inn í þáttinn til þeirra í nokkur í skipti og var nú engin undantekning í morgun þegar þessi blessaða kona tók upp tólið og vildi spjalla við vini sína í Zúúper.

Þessi yndislega kona hringir alltaf í alveg yndislegu skapi. Þarf varla að spyrja að því að það er eitthvað annað en jafnaðargeð sem veldur þessa góða skapi hjá henni því þvöglumælt er hún. Þannig það er ekki annað hægt en að gera ráð fyrir að þetta yndi sé að ljúka blautri og annasamri nótt með að bjalla í þessa útvarpsvini sína. Og sú fer á kostum! Hún byrjaði að hringja í morgun í þau, hress að vanda. Og samtali hófst einhvernveginn svona (eins best og ég man):




"Zúúper góðan dag!"

"já góðn dagn, fenguð þið ykkr ekki skötu í gær?"(þvöglumæli sko)

"Ha? Skötu, meinaru ekki saltkjöt, það var sprengidagur í gær"

"Sprengidagur, var ekki þorlákssssmessa? nei (hlátur) ég meinti saltkjöt! (enn meiri hlátur)"

Jæja, svona skemmtilega byrjar hún samtölin. Þau hlægja með henni og hafa gaman af. Svo þakka þau fyrir og leggja á hana. En það er ekki búið..neiiiiii....Hún hringir aftur:

"Ér sko búin að vera að búa til öskupoka í alla nótt"

"Jahá, dugnaður í þér! Ertu viss um að það sé það eina sem þú varst að gera, þú hefur ekki verið að baka einhverjar skemmtilegar kökur?

"Neinei (hlátur)"

"Þú veist að þú átt ekki að drekka kardimömmudropana, er það ekki?"

"(Skessuhlátur) Hva meinarðu, þetta voru vanilludropar!"

Já, svo er henni aftur þakkað fyrir að hringja og lagt er á. Nema það að blessunin er sko ekki dottinn úr stuðinu og hringir aftur....og aftur...og aftur! Meðal þess sem gerist í þessum símtölum er að hún segist vera að koma krökkunum í skólann....en hún svo minnt á það að það sé frídagur í skólunum vegna öskudagsins.




"En hvernig er það, er það bara venja hjá þér að fara á fyllerí svona á miðvikudagsmorgnum?"

"Hvaðr þetta maðr, ég fór á fyllerí á þriðjudagskvöldi!"


Já það er nefnilega miklu betra!!!!:) Svo enda þessi samtöl á því að hún nær að hringja inn en gleymir bara að tala í símann...also known as dead air svo þannig endaði ævintýrið.

En ég var búin að hlægja með sjálfri mér í þó nokkra stund meðan ég var að hlusta á þetta þegar ég fór að hugsa: Ok það er virkilega manneskja úti í bæ sem er svona vel í því á morgnanna og í svo miklu stuði í útvarpinu. Og einhvernveginn fannst mér það ekki fyndið lengur....


miðvikudagur, janúar 16, 2008

Nei, hvað? Blogg?

Já, nýtt blogg......mér leiddist;)


Allt er nú til....

Áttu engan sérstakan í þínu lífi? Langar þíg að eignast kærasta/kærustu? Þá er wikihow.com með svarið!

Það er hægt að stóla á það í dag, á dögum tækni og framfara, að þú getur alltaf fundið leiðir til að læra það sem þú kannt ekki. Eitt klikk á veraldarvefnum getur fært þér alla þá þekkingu sem þú þarfnast, ja svona næstum. Meira að segja, ef þú ert vandræðaleg/ur í samskiptum við hitt kynið (ja, eða sama kynið if that is how you swing) þá þarfu ekki að örvænta. Ég fann þessar leiðbeiningar á wikihow.com um hvernig þú getur breytt þessu í lífi þínu. Svo ef þú átt í vanda, then listen and learn því ég hef ákveðið að þýða þessar skemmtilegu leiðbeiningar!



Hvernig nærðu þér í kærasta/kærustu?

1. Passaðu upp á hreinlætið. Þú þarft ekki að vera Brad Pitt eða Angelina Jolie til að draga að þér hitt kynið. Gakktu í fötum sem passa á þig og haltu líkamanum hreinum.

2. Haltu góðri líkamsstöðu, ákveðnu göngulagi og brostu. Þá virðist þú hafa mikið sjálfsöryggi og það er aðlaðandi.

3. Aðlagaðu útlit þitt að persónuleikanum sem þú vilt heilla. Verslaðu í Sævari Karl ef þú vilt ná þér í lúxus skvísu en í Nonnabúð ef þú vilt næla þér í rokkgellu

4. Veldu þér stað þar sem mikill hópur stelpna eða stráka koma saman og þar sem þér líður vel, kannski stað þar sem hæfileikar þínir geta notið sín eins og í tónlist, ræðuhaldi eða bara í persónulegum samræðum. En ekki stara og fiska út persónur, vertu óþvinguð/aður. Farðu út og skemmtu þér! ( netið telst ekki með hér)


5. Vertu fyndin en ekki reyna of mikið. Prufaðu litla brandara hér og þar og athugaðu viðbrögðin. Ef þú færð engin hlátursviðbrögð biddu þá fyrir þér því það er erfitt að vinna stelpu/strák yfir án húmors.

6. “Gróðursettu nokkur fræ”. Daðraðu óformlega við þjónustustúlkuna/strákinn, brostu til stelpu/stráks sem á leið framhjá þér, skálaðu við strák/stelpu á bar. Allt sem þú getur gert meðan þú ert að skemmta þér með vinum þínum.

7. Láttu aðilann sanna sig fyrir þér. Ekki vera fífl, en á skemmtilegan og fjörugan hátt, láttu aðilan sanna gildi sitt fyrir þér. Spurðu einfaldra spurninga eins og: “ertu fordómalaus? Flott því mér líkar vel við fólk sem er með opin huga”.


8. Talaðu. Þögn er óþæginleg. (Hins vegar er fólk óþolandi sem gera ekkert nema að tala og hlusta aldrei. Svo finndu góðan meðalveg!)

9. Náðu sambandi við aðilann. Finndu hvað þig eigið sameiginlegt og verðlaunaðu aðilanum með brosi eða sögu af sjálfri/um þér ef aðilinn segir þér eitthvað sérstakt um sig sem þér geðjast að. AÐVÖRUN: Ef aðilinn segir þér eitthvað eins og: “Oh, ég hef gaman að því að versla” þá ekki verðlauna hann/hana, þetta er ekki sérstakt. Í staðinn, fáðu nánari upplýsingar og þá geturu tengst aðilanum gegnum þær upplýsingar

10.
Horfðu og snertu. Náðu augnsambandi við aðilann og sýndu virðingu og áhuga. Þétt handtak, blíð stroka eftir bakinu, létt snerting á handarbakið og aðrar fíngerðar snertingar mynda tengingu milli ykkar.



11.Láttu þér líða frábærlega. Tilfinningin smitast yfir á hinn aðilan.

12.
Ekki þykjast vera einhver sem þú ert ekki, þú gætir haldið að þú vinnir aðilann yfir með leikaraskap en á endanum þá kemur hið sanna þú fram. Leitaðu eftir sameiginlegum áhugamálum.


13.Sýndu áhuga þinn. Besta leiðin til að forðast “vinagildruna” er að láta aðilann vita hver tilgangur þinn er frá upphafi. Svo eftir að þú hefur fundið sameiginlegu áhugamálin, láttu aðilann þá vita að þú hefur áhuga með setningu eins og: “Veistu, ég var að átta mig á því að auk þess að vera falleg/ur þá er skemmtilegt að tala við þig”


14.Biddu um símanúmerið hans/hennar!

15.
Og þegar þú hefur náð þessu sérstaka einkasambandi sem kærasti eða kærasta, þá ekki, ég endurtek, ekki hætta herramennskunni eða kurteisinni. Haltu áfram að gera þessa litlu hluti sem tengdu ykkur saman í upphafi. Ef þið deilið ekki nóttunum saman, hringdu þó samt í hann/hana og bjóddu góða nótt. Mundu, sýndu væntumþyggju og virðingu og þá færðu þessa hluti á móti.



Tipps


Settu gott ilmvatn eða rakspýra á þig en ekki ofgera því. Takmarkaðu við 3 sprautur í einu. Haltu hári, tönnum og nöglum hreinum.



Vertu viðræðuhæf/ur. Lestu nýjustu fréttir í stjórnmálum, skemmtun, listum og jafnvel íþróttum. Þú lítur þá út fyrir að vera vel menntuð/aður og efnilegri. Eða vertu vel menntaður í alvörunni!

Ekki taka fram í fyrir hinum aðilanum. Hlustaðu og svaraðu þegar það á við hæfi.

Vertu viljug/ur til að borga fyrsta drykkinn, fyrsta stefnumótið, fyrsta leigubílinn og svo framvegis. En ef að hinn aðilinn býðst líka til þess vertu þá einnig viljug/ur til að leyfa honum/henni að borga. Þá er ágætt að nota setninguna “Ég fæ þá að borga næsta” sem gefur í skyn áhuga á að hitta hann/hana aftur.

Ekki segja hluti sem þú þarft að útskýra, sérstaklega brandara. Það er ein mesta eyðilegging á stemningu.

Ekki ergja hinn aðilann með að sms honum/henni á hverjum degi/kvöldi. Ef aðilinn sms-ar þig svaraðu þá, nema ef þú hefur ekkert að segja. Það er frekar pirrandi þegar einhver sendir þér sms á hverjum degi með “hvað ertu að gera?” skilaboðum.

Ekki vera hrædd/ur að sýna væntumþyggju þína meðal almennings.

Vertu þú sjálf/ur!!



VARÚÐ!

Ekki ofsækja manneskjuna!

Ekki bjóða einhverjum á stefnumót án þess að vita hvert þú ætlar að bjóða honum/henni.

Ekki yfirtaka samræðurnar

Ekki ýta á eftir manneskjunni til að gera eitthvað sem hún vill ekki gera.

Forðastu að vera of mikið ofan í manneskjunni, haltu ágætri fjarlægð en hallaðu þér inn annað slagið og þess vegna snerta manneskjuna létt á handarbakið o.s.fr.

Ekki segja ógeðslega eða dónalega brandara. Nema það sé greinilega eitthvað sem hinn aðilinn sé greinilega fyrir.

Ekki láta hinum aðilanum líða eins og kynlífstákni. Þó að hinn aðilinn sé vel vaxin og mjög aðlaðandi þá er ekkert eins lítið aðlaðandi og manneskja sem getur ekki ráðið við það.



Svo ef allt að ofan gengur upp þá getur þú meira að segja lært að kyssa á wikihow.com!

laugardagur, nóvember 17, 2007

Come and join me:)



mánudagur, nóvember 05, 2007

Þrátt fyrir mín hörðu mótmæli þegar að ein af mínum uppáhaldsbloggurum ætlaði að hætta um daginn ætla ég samt að vera svo kaldhæðnisleg og blessa þetta blogg um leið og ég legg það niður!
Ætla að taka Friedrich Nietzsche á þetta og segja: Bloggið er dautt!

Kannski birtist vofa þess annað slagið ef að þannig liggur á manni, en ekki halda andanum, annars endið þið á sama stað og bloggið mitt:D




Öll samúðarskeyti og blómvendir eru afþakkaðir en þeim sem vilja sýna samúð er bent á BA samtökin eða bloggers anonymous:)

fimmtudagur, október 25, 2007

When I'm 64.....

Í fimm ár var ég að vinna á elliheimili. Ég kynntist fullt af eldra fólki og komst þá að því að gamalt fólk er alls ekki leiðinlegt. Þvert á móti þá er það bara ofsalega skemmtilegt. Margt þeirra grínast, fer á bjórkvöld, á í ástarsamböndum, vakir lengi, er púkalegt og glettið.





Oft sakna ég þess að vinna þar en það sem ég sakna ekki eru launin, sem verður að viðurkennast að er nefnilega stór hlutur í dag, að vera á sæmilegum launum. (þess vegna er ég að vinna hjá Tollstjóranum, því það eru svo góð laun!!!hahahaha:) En eins og við erum öll misjöfn og við erum mörg þá er ekki allt eldra fólk svona skemmtilegt.

T.d fólkið sem svarar þér svona þegar þú býður góðan daginn: "Rétt er að segja góðan dag!".


Eða þegar það heyrir mann segja: "Æ, greyið hún Jóna er veik í dag! og það svarar: "Grey er nafn yfir vesælan hund og er niðurlægjandi að nota það orð yfir manneskju".


eða ef maður segir: "Ég er með svo mikinn verk í hausnum!" og það áminnir mann að manneskjur eru ekki með haus, þær séu með höfuð.




Allavega, þið skiljið hvað ég meina. Ég ákvað því að þegar ég er orðin gömul, lífsreynd og hrukkótt þá ætla ég að halda í fjöruga kjarnann, fá mér sherry á kvöldin og verða skotin í gamla mannninum í herberginu við hliðina (sem verður s.s. Hafsteinn en sú gamla ég man ekki hver hann er, hehe)


Og ég lofa ykkur, hér og nú, að ég mun láta búa til svona bol fyrir mig og ég mun ganga (eða rúlla mér áfram í hjólastólnum) um gangana í bolnum með glott á vör!:)


þriðjudagur, október 16, 2007

Ég ætla að fara að reykja Lucky Strike og fara í verkfall þar til ein ákveðin manneskja hættir við að hætta að blogga.....eða gefur mér knús:)





fimmtudagur, október 11, 2007

Glæpamaður í tjaldi...



Vincent D´onofrio.......????



Eða Björn Ingi Hrafnsson?????

Hvor sem það er, þá er þetta nú meiri skrípaleikurinn....Ætla ekki einu sinni að reyna að botna í þessari borgarstjórnarsúpu. Ætla bara að þakka fyrir það að vera hafnfirðingur:D

þriðjudagur, október 02, 2007

Baby boy:)



Lena, Elí og Friðbert Dagur!:)
Innilega til hamingju með nýjasta fjölskyldumeðliminn;)
Knús, knús:)






laugardagur, september 08, 2007

Konur eru frá Yahoo, Menn eru frá Google....

Heyrði í útvarpinu í gær (minnir mig) að einhverjir prófessorar úti í heimi hafi verið að gera rannsókn á því hverju konur laðast að í fari karlmanna og svo öfugt. Þeir fundu það út, með einhverjum rannsóknaraðferðum, að konur laðast að ríkum mönnum og karlmenn af fallegum konum. Og þar af leiðandi væru bæði kynin grunnhyggin, á mismunandi hátt þó.





Ég fór þá að hugsa: Ok, kannski eru konur og karlmenn ekki svo ólík. Jú, við erum auðvitað á marga vegu ólík en kannski er hægt að segja að munurinn sé þó hinn sami? Ok, kannski svoldið flókið en ég rakst svo á niðurstöðu rannskóknar sem ég fann á netinu. Þar kom í ljós að konur og menn hugsa öðruvísi. Það er að segja að konur nota aðrar stöðvar í heilanum þegar þær hugsa heldur en karlmenn.

Samkvæmt þessu þá er heilinn gerður úr tvem mismunandi efnum. Gráu efni og hvítu efni. Rannsóknin sýndi að menn hugsa meira með gráa efninu en konur með hvíta efninu. Þó var lagt á herslu á það að þó að kynin hugsa með mismunandi svæðum þá hafi það ekki áhrif á gáfur kynjanna. Sem gefur þá til kynna að þróun mannkynsins hefur skapað tvær týpur af heilum, hannaða fyrir jafn miklar gáfur.




Ok, en hvernig hafa þessi svæði áhrif á hugsun konunar og svo mannsins? Samkvæmt annarri rannsókn þá er notkun internetsins mismunandi eftir kynjum. Konur nota netið sem stað þar sem þær geta aukið, stutt við og nært sambönd sín við vini og ættingja. Karlmenn sjá netið frekar sem skrifstofu, bókasafn eða leiksvæði. Netið snýst um notagildi hjá þeim, ekki vinasambönd. Konur skrifa pósta og nota netið til að eiga samskipti við fjölskyldu og vini varðandi fjölbreytileg efni, deila fréttum, gleði, áhyggjum, skipuleggja atburði og áframsenda brandara eða sögur.
Þessu til stuðnings má skoða barnaland:)


Til að skilja betur muninn á konum og karlmönnum ætla ég að deila með ykkur smá sögu sem ég fann:


Segjum að strákur sem heitir Bárður sé hrifin af stelpu sem heitir Birta. Hann býður henni í bíó, hún þiggur það og þau skemmta sér mjög vel saman á fyrsta stefnumóti. Nokkrum kvöldum síðar bíður hann henni út að borða og aftur, þá skemmta þau sér mjög vel. Þau halda áfram að hitta hvort annað reglulega og eftir smá tíma þá eru þau hætt að deita annað fólk.

Svo, eitt kvöld þegar hann er að keyra hana heim eftir stefnumót, kemur hugsun upp í höfði Birtu. Án þess að hugsa þá segir hún upphátt: "Veistu, eftir þetta kvöld, þá erum við búin að vera að hittast í akkúrat 6 mánuði?".

Og þá er hljóð í bílnum. Fyrir Birtu, þá virðist þetta vera mjög hávær þögn. Hún hugsar með sjálfri sér: "Vá, ætli að það trufli hann að ég hafi sagt þetta? Kannski hefur honum fundist það vera þrengt að sér út af þessu sambandi okkar; kannski heldur hann að ég sé að reyna að ýta honum út í einhverja skuldbindingu sem hann vill ekki eða er ekki viss um".

Og Bárður er að hugsa: "Vá, sex mánuðir."

Og Birta hugsar: "En hey, ég er ekki viss um að ég vilji einhvers konar samband akkúrat núna heldur. Stundum óska ég þess að ég hefði smá meira pláss svo ég hafi tíma til að hugsa um hvort ég virkilega vilji halda áfram með sambandið á þennan hátt, færast nær...ég meina, hvert erum vð að fara? Ætlum við bara að halda áfram að hittast á þessu stigi nálægðar? Erum við á leið hjónabands? Eignast börn? Eyða lífinu saman? Er ég tilbúin fyrir það stig skuldbindingar? Þekki ég hann virkilega það vel?"

Og Bárður er að hugsa: "......svo það þýðir að það var...sjáum til...Febrúar þegar við byrjuðum að hittast, sem var rétt á eftir að ég keypti bílinn, sem merkir...." (kíkir á kílómetramælirinn) "Vá, ég á að vera löngu búin að fara með hann í olíuskipti!".

Og Birta hugsar: "Hann er í uppnámi. Ég get séð það á andlitinu hans. Kannski er ég að lesa þetta kolvitlaust. Kannski vill hann meira út úr sambandinu okkar, meiri nálægð, meiri skuldbindingu; Kannski fann hann það, áður en ég fann það, að ég hafði efasemdir. Já, það er örugglega það. Þess vegna er hann svona tregur til að segja eitthvað um hans tilfinningar. Hann er hræddur um að verða hafnað."

Og Bárður hugsar: "Ég ætla að láta þá kíkja í leiðinni á skiptinguna aftur. Mér er alveg sama hvað þessir fávitar segja, bíllinn skiptir ekki rétt um gír. Og það er eins gott að þeir segi ekki aftur að það sé kalda veðrinu að kenna. Hvaða kalda veðri? Það er 14 gráður úti og bíllinn skiptir eins og ruslabíll og ég borgaði þessum vanhæfu ösnum 30.000 kr fyrir að kíkja á þetta síðast."

Birta hugsar: "Hann er reiður. Og ég álasa honum það ekki. Ég væri reið líka. Mér finnst ég vera svo sek, að láta hann ganga í gegnum þetta en ég get ekki gert að því hvernig mér líður. Ég er bara ekki viss með þetta".

Bárður hugsar: "Þeir segja örugglega að það sé bara 90 daga ábyrgð. Það er nákvæmlega það sem þeir munu segja, þessir skíthælar!".

Birta hugsar: "Kannski er ég bara búin að horfa á of margar hollywood myndir. Meðan ég er að bíða eftir riddara á hvítum hesti þá sit ég við hliðina á fullkomnlega góðri manneskju sem ég nýt þess að vera með, manneskju sem mér þykir vænt um, manneskja sem virðist þykja vænt um mig. Manneskja sem er að þjást vegna minnar sjálfelsku-skólastelpu-rómantísku fantasíu".

Bárður hugsar: "Ábyrgð? Þeir vilja ábyrgð? Ég gef þeim ábyrgð. Ég tek þessa ábyrgð þeirra og segji þeim að troða henni þar sem að...."

"Bárður." Segir Birta upphátt.

"Já?" Segir Bárður, hálf brugðið.

"Ég er svo mikill bjáni" Snökktir Birta. "Ég meina, ég veit að það er engin riddari. Ég virkilega veit það. Það er kjánalegt. Það er engin riddari og engin hestur."

"Það er engin hestur????" Segir Bárður, hálf ringlaður.

"Þér finnst ég vera kjánalegt, er það ekki?" Segir Birta.

"Nei!!" Segir Bárður, glaður að vita loksins rétta svarið.

"Það er bara.....Það er að ég....ég þarf smá tíma". Segir Birta.

(Það er 15 sek pása meðan að Bárður hugsar eins hratt og hann getur til að reyna að finna upp á svari sem er öruggt. Loksins finnur hann það sem hann telur vera rétta svarið.)

"Já". Segir hann.

(Birta, djúpt snortin, snertin höndina hans)

"Oh, Bárður, líður þér virkilega þannig líka?. Segir hún.
"Þannig??" Segir Bárður.

"Um tímann!" Segir Birta.

"Oh..." Segir Bárður. "Já".

(Birta snýr sér að honum og starir djúpt í augun hans, sem veldur því að hann verður mjög stressaður vegna þess sem hún gæti sagt næst, sérstaklega ef það er um hesta. Loksins talar hún.)

"Takk Bárður" Segir hún.

"Takk" Segir Bárður.

Þegar hún kemur inn heima hjá sér leggst hún á rúmið, ráðvillt og þjáð. Hún grætur þar til að sólin kemur upp. Bárður hins vegar fer heim til sín, opnar snakkpoka, kveikir á sjónvarpinu og dettur inn í endursýningu á tennismóti þar sem tveir tjekkóslavar, sem hann hefur aldrei heyrt um, eru að berjast um titilinn. Lítil rödd í höfðinu á honum segir honum að það hafi eithvað stórt hafi verið í gangi í bílnum áðan en hann er viss um það að hann muni aldrei skilja hvað gekk á og hann kemst á þeirri niðurstöðu að það sé betra að hann hugsi ekki um það.

Daginn eftir þá hringir Birta í alla nánustu vini sína, þær tala um stöðuna í sex tíma. Í nákvæmum lýsingum, greina þær allt sem hún sagði og allt sem hann sagði. Fara yfir það aftur og aftur, kanna hvert orð, hvert viðbragð og tjáningu til að finna tilgang þeirra og taka til greina allar mögulegar niðurstöður. Þær munu halda áfram að ræða þetta, af og til í margar vikur, kannski mánuði, ná aldrei neinni endanlegri niðurstöðu en fá aldrei leið á umræðuefninu heldur.

Meðan er Bárður að spila veggtennis með sameiginlegum vini hans og Birtu. Hann stoppar í smá stund áður en hann gefur boltann, grettir sig og segir:

"Danni, átti Birta einhvern tíman hest?"



Munurinn á konum og körlum er því hver?? Ég held að málið sé það að við getum rætt þetta alla ævi okkar, náð aldrei neinni endanlegri niðurstöðu þó við fáum aldrei leið á umræðuefninu heldur. En þetta myndband nær þessu samt ansi vel:)




Ýta tvisvar á play takkann til að myndbandið spilist;)

miðvikudagur, ágúst 29, 2007

Vinnugella...

Jæja, þá er mín að snúa aftur á vinnumarkaðinn eftir gott frí :Þ Fór að sækja um störf sem mér fannst áhugaverð fyrir ca 2 vikum, aðallega skrifstofustörf. Fyrsta starfið sem ég sótti um var hjá Tollstjóranum í Reykjavík.


Á mánudaginn var ég svo boðuð í atvinnuviðtal sem gekk mjög vel. Var svo boðuð aftur í gær í viðtal nr 2. Fékk svo símhringingu í morgun og....



I got the job!! :Þ



Hlakka til að takast á við ný verkefni og vinnu. Þessu fylgir eflaust smá heimalærdómur því að það þarf að hafa tollalög á hreinu og svona, sem er bara mjög skemmtilegt:). En þetta kemur betur í ljós eftir fyrsta vinnudaginn.


Hamingjuóskir eru vel þegnar ;) en afþakka þó gjafir og heillaskeyti.


Og þið sem hugsið eins og einn sem ég þekki: Nei, þið eruð ekki komin með insider í smygl og ég get ekki veitt afslátt á innflutningi;)


Annars er allt gott að frétta héðan af fjallinu. Mín er orðin 25 ára og það tók svolítið á. Fékk smá svona "ó mæ god, ég er orðin hálffimtug". En er búin að jafna mig núna. Við ætluðum að halda upp á sameiginlegt afmæli okkar Hafsteins (60 ára afmæli;) þann 1.september. Eeeen við finnum engan sal sem er á skynsamlegu verði og án fylgikonu sem þarf að borga aukalega. Fundum þó einn sal en hann er bara svo stór fyrir svona frekar litla samkomu og mjög dýr svo að við ákváðum að fresta þessu og sjá til hvort að við getum ekki reddað einhverju seinna í haust;) Er nebbnilega búin að skipuleggja allt annað; þema, finna tónlist og setja saman geggjaðan playlista, rétti og áfengi til að bjóða upp á og tilheyrandi spenningur farin að myndast. Vantar bara place-ið:( En it´s ok, þetta reddast, eins og alltaf;)

Svo er ég á fullu að máta lítil kríli;) Kíktum á Árna Karl, nýfædda strák Óskar og Skarphéðins um daginn. Svo fórum við upp á fæðingardeild og kíktum á Marínó Franz, litla frænda minn, daginn eftir að hann fæddist. Hann var svo nýr og sætur að ég var næstum því búin að eigna mér hann;) Þessi kríli eru svo mikil blessun og yndi:) Á morgun fer ég svo loksins að heimsækja Hebu frænku en það er þó nokkuð síðan að hún eignaðist stelpuna sína, Kristínu Völu.

Þannig það er nóg að gera í barnageiranum, hehe! Og ekkert er að róast yfir óléttutíðindunum því í þessari viku er ég búin að fá 3 fréttir af ættingjum eða vinum sem eru ólétt. Svo fyrr í sumar þá sagði systir Hafsteins okkur að hún ætti von á einu litlu í febrúar.

Iss...maður er greinilega ekki að fylgja hópnum;)

Ætla að láta þetta duga í bili en ætla að enda þetta með myndbandi sem er vel við hæfi;)

föstudagur, ágúst 17, 2007

Hann er kominn í heiminn!:D

Rétt í þessu var ég að eignast lítinn frænda! Það hefur verið löng biðin eftir honum og með mikilli eftirvæntingu! Hann fæddist 14,5 merkur og 50 cm. Ég hef ekki séð hann en hann er án efa yndislegur og fallegur!


Ohhh...ég er svo glöð:D


Bjarni, Áslaug og Guðrún Erla, Innilega til hamingju með litla kút:)


Hlakka til að sjá ykkur!:)



miðvikudagur, ágúst 15, 2007

Klukk klukk

Hún Dísa skvísa mín klukkaði mig af leik sem er í gangi í bloggheiminum. Leikurinn snýst um að maður á að segja 8 hluti um sjálfa sig og svo klukka 8 aðra bloggara. So here I go:)


1. Byrjum á smá væmni;) Ég á yndislegasta kærasta í heimi og þann 26. ágúst n.k eigum við 4ra ára afmæli:)


2. Mig hefur alltaf langað að læra á píanó.


3. Þegar ég mála þá tæmist höfuðið alveg og ég gleymi algjörlega stað og stund. Mér finnst ég stundum vera búin að mála í kannski 10 mínútur en í raun eru liðnir 2 tímar. En ég er greinilega ekki ein um það því eins og Allie í The notebook sagði: "Most of the time I have all these thoughts bouncin' around in my head... but with a brush in my hand, the world just gets kinda quiet."


4. Ég hef stundað olíu og akrýlmálun í 11 ár, eða síðan ég var 14 ára.


5. Ég græt aldrei yfir myndum. En þegar ég horfi á The Notebook þá græt ég svo mikið að ég þarf heila eldhúsrúllu til að halda andlitinu þurru. Og ég er yfirleitt ekki fyrir tearjerkers;)


6. Ég eeeelska austurlenska og ítalska matargerð og trúi því að ég hafi verið af báðum þjóðernum í fyrri lífum:)


7. Mig dreymir um að búa á Ítalíu einhvern tímann á ævinni, helst í Toscana héraðinu.


8. Ég tala upp úr svefni stundum og á oft heilu samræðurnar við Hafstein án þess að muna eftir því:)



Veiii...búin, og núna ætla ég að klukka alla á tenglalistanum mínum:)

S.s. Auðbjörg, Anna, Dagný Ósk, Frida, Rósa, Sibba, Sunna og svo Hugrún (Hugrún, þú hefur bloggað á Club 7 síðunni svo þú ert gild þar inni, haha)


Hey ég þekki 8 bloggara, ja...sumar eru ekki mjög virkar en bloggarar þó. Sagði Dísu að ég þekkti ekki 8 bloggara but, hey, will you look at that...:D


mánudagur, ágúst 13, 2007

Nýfæddur Rosenkjær

Ósk og Skarphéðinn eignuðust strák í gær, 12. Ágúst. Hann fæddist 15 merkur og 50 cm. Ég fékk hann reyndar ekki í "afmælisgjöf" eins og hann var settur en það var miklu betra veður í gær heldur en þann 9 svo það var bara betra, fæddist á fallegum degi:)

Til hamingju nýbakaða fjölskylda:)

Hlakka til að sjá ykkur!


fimmtudagur, ágúst 09, 2007

Neiiihhhh...

Ha?





föstudagur, júlí 13, 2007

Tákn um Æði (krasíness)

Ég leit í þjónustubókina fyrir bílinn okkar í vikunni (því ég er svo samviskusöm) og sá að það er að koma tími á þjónustuskoðun. Hlakka ekkert mikið til þar sem að síðasta þjónustuskoðunin kostaði nálægt 50.000kr. en þeir skiptu reyndar þá líka um brotið bretti undir bílnum (sem sölumenn I.H sögðu reyndar að búið væri að gera og við treystum því). Anyhows, ég er ekki að fara að væla hérna, þvert á móti. Ég fór nefnilega að rifja upp þegar ég hringdi til að bóka þjónustuskoðun í fyrsta skiptið hjá Toyota. Það var þegar við áttum Yaris-inn and it went like this:

Fyrir u.þ.b 3 árum þá fór ég í hanskahólfið í "nýja" Yarisnum mínum þar sem mig langaði að hugsa vel um þennan flotta bíl minn. Sá þá að ég átti að fara með hann í þjónustuskoðun fyrir u.þ.b. 100km síðan, fékk smá áhyggjukast og fletti fremst í bókinni og fann símanúmerið hjá Toyota til að panta tíma. Jújú, ég hringi og kona svarar. Segir mér að ég eigi pantaðan tíma eftir viku. Ég hugsaði bara frábært, ef ég keyri hann ekkert of mikið í vikunni þá ætti ég að sleppa. Ég tók s.s kílómetrafjöldan fyrir skoðunina algjörlega bókstaflega:)


Nema hvað að ég segi Hafsteini að ég hafi pantað skoðun, ætti að mæta með hann eftir viku. Hann horfði á mig með stóru spurningarmerki og spyr mig hvort ég hafi ekki verið að panta tímann í dag. "Jú" segi ég eins og ekkert væri eðlilegra, "Af hverju?". Þá segir hann mér að yfirleitt sé biðtíminn einhver mánuður og að hann væri hissa á þessu. En við ákváðum að pæla ekkert meira í þessu.


Svo viku seinna þá vöknum við fyrir kl 8, út í skítakuldann og mætum á réttum tíma með bílinn. Ég fer inn og bíð og bíð, sé ekki sálu þarna inni. Svo eftir að ég var búin að bíða í einhvern korter kemur kall inn og ég segi að ég eigi pantaðan tíma og er svo spurð hvað sé bílnúmerið á bílnum. Jú, ég segi manninum það og hann slær það inn í tölvuna. Horfir svo á mig og segir: "Þú átt ekki pantaðan tíma í dag, ertu alveg viss um að dagsetning sé rétt?" Ég sagði bara að ég hefði fengið þessa dagsetningu hjá konunni í símanum og það væri í dag. Svo eftir smá pælingar og stöff þá biðst hann afsökunar á þessum mistökum, segir að það sé fullt hjá þeim í dag en hann geti reddað mér tíma eftir 5 virka daga. Ég tók því og þakkaði fyrir þó að ég væri nú ekki alveg sátt við þetta en jú, mistök gerast.

Svo, fimm virkum dögum seinna þá mætti ég aftur og jú, var skráð með pantaðan tíma og ekkert mál. Karlinn segir mér að mér verði sent SMS þegar bíllinn verður tilbúinn. Ég spurði hvort að ég ætti ekki von á honum í dag og hann segir: "Jú, býst við að hann verði tilbúinn í síðasta lagi klukkan 14". Ég þakka fyrir og fer heim.


Ég hafði hringt í mömmu og spurt hana hvort hún gæti skutlað mér til að ná í bílinn um það leyti því að Hafsteinn var að vinna yfirvinnu sem þýddi að ég þyrfti þá annars að sækja bílinn daginn eftir. Það hafði verið ekkert mál fyrir hana en hún var þó að fara eitthvert kl 16. Ég sagði að það myndi líklega ekki vera vandamál því að karlinn sagði í síðasta lagi kl 14.


Nema það að svo varð klukkan 14 og svo var hún orðin 15. Þannig að ég fer í símann, finn númerið sem ég hafði hringt í áður og fæ samband við verkstæðið. Þá svarar einhver maður og ég segi að ég sé með bílinn í skoðun og mig langi til að athuga hvernig gangi, hvort hann sé að verða tilbúin. "Ekkert mál" segir maðurinn "hvað er bílnúmerið?" Nú ég læt hann fá það og svo kemur smá þögn í símann. Svo segir hann:


"Komstu með hann í morgun?"
"Já"
"Komstu með lyklana inn til okkar?"
"Uhmmm, já, það var starfsmaður sem tók á móti honum og setti hann í svona plast með einhverjum pappírum"
"Ok...Hann er ekki skráður hérna hjá okkur í dag. En ég er með pöntun í skoðun í síðustu viku sem ekki var mætt í?"
"Já, ég kom með hann þá en þá var mér sagt að ég ætti enga pöntun þennan dag og fékk nýja pöntun í dag". (svoldið pirruð þarna)
"Heyrðu, ég þarf aðeins að skoða þetta, má ég hringja í þig eftir smá stund?"
"Já, ok!"

Ég legg á og hringi beint í Hafstein. Segi honum að þeir séu örugglega búnir að týna bílnum okkar og þetta sé ekki smá mikið rugl hjá þeim. Hann segist vera rétt hjá og ætlaði að kíkja á þá. Svo nokkrum mínútum síðar hringir síminn og þá var það karlinn:

"Sæl aftur, heyrðu, hvar lagðiru bílnum?"
" Fyrir framan móttökuherbergið"
"Beint fyrir framan? Og það er Yaris?"
"Já, grár Yaris, ég lagði honum nokkrum stæðum fyrir neðan móttökuna"
"Ég sé nú bara engan gráan Yaris hérna fyrir utan, bíddu!"
(Tólið lagt niður í nokkrar sek)
"Nei, engin Yaris fyrir utan, er það ekki örugglega fyrir utan móttökuna sem þú lagðir?"
"Jú, þarna hjá lága hvíta veggnum" (frekar pisst)
"Ha? Bíddu, lága hvíta veggnum? Heyrðu, vinan, hvar ert þú á landinu?"
"Hafnarfirði"
"Jájá, þarna kom það, þú ert að hringja á Toyota umboðið á Akureyri, þú hefur líklega farið með bílinn í Kópavoginn, er það ekki?"
"Ha? Jú..... (skömmustuleg anskotans) Afsakaðu þennan miskiling hjá mér!"
"Hahaha, ekkert mál vinan, gangi þér vel að finna bílinn"
"Já, takk"

Jújú, Hafsteinn hringdi svo í mig um leið og skildi ekkert í mér. Bíllinn var þarna og þeir voru bara að klára skoðunina, þeim hafði seinkað aðeins þó en ekkert vandamál með bílinn, sem kom mér ekkert á óvart þá þarna, hehe!

En svo þegar ég var búin að sækja bílinn þá kíkti ég í þjónustubókina. Bíllinn hafði upphaflega verið seldur á Akureyri og því með afgreiðslunúmer þaðan. Ég var fljót að henda þeim úr bókinni:) Og nú læt ég Hafstein um það að hringja og panta skoðanirnar *roðn*.

Jebb, endalaust get ég fundið kjánalegar sögur af sjálfri mér;)


sunnudagur, júlí 01, 2007

da da da daaaa da da da daaaaaa...

Síðustu 2 vikur hafa verið frábærar. Þann 15. júní gæsuðum við Fridu okkar og var það heljarinnar stuð. Sérstaklega þar sem að hún Frida er sko ekki feiminn og hægt er að fá hana í flest (Hún mætti gefa mér smá af þessari ófeimni sinni:). Það var því hægt að fá hana í allskonar vitleysur og endalaust hægt að hlæja að og með henni:) Hér eru tvær myndir frá deginum:




"Eftirrétturinn" í hádegismatnum:)





Stike a pose myndatakan í búðinni hjá Sævari Karl





Þetta myndband var s.s þemað fyrir deginum.



Svo skelltum við okkur í sumarbústað í heila viku bara tvö ein hjúin. Fengum þó góðar heimsóknir inn á milli til að bjarga okkur frá leiðindum og morðhugleiðingum:) Fengum alveg yndislegt veður allan tímann, það leið ekki einn dagur þar sem við fengum ekki 20+ hita. Ohhh...hvað ég sakna þess að liggja með hubbí-inum mínum í heita pottinum í sólinni. Það er sko alveg pottþétt að næsta eignin okkar verður með heitum potti. En mín fékk smá lit á kroppinn, fannst það þvílíkt afrek því að þó að það sé talið að einn forfaðir minn hafi verið af afrískum-amerískum ættum þá mætti frekar halda að ég sé under-cover rauðka. En Hafsteinn verður nú bara brúnn ef hann sér ljósmynd af sól þannig hann lítur út eins og að hann sé nýkomin frá útlöndum.


Ég og Hafsteinn í heita pottinum...lítur allavega svona út í minningunni;)

Svo fórum við í brúðkaupið hjá Fridu og PengBo í gær. Það var svo skemmtilegt og mikið fjör. Þetta var frekar mikil menningarbræðsla því að brúðurin er íslensk/færeysk og brúðguminn er kínverskur. Þannig að í gær heyrðum við ræður á íslensku, færeysku og kínversku. Drukkum kínverskt vín (held það hafi veri sake en er ekki viss en áfengismagnið var um 50% og það er drukkið dry) færeyskur ákavíti (svipað af styrkleika og þetta kínverska held ég) auk freyðivíns, hvítvíns, rauðvíns og bjórs. Gvöð, maður var orðin frekar hýfaður. Og mikið var dansað og hlegið:) Það versta er að nú er ég komin með þessa þvílíku brúðkaups-bakteríu og hef auglýst eftir lyfjum við þessari skæðu bakteríu. Nú, ekki nema að maður reyni að smita Hafsteinn í leiðinni, aldrei að vita, blink blink! En nóg í bili, ætla að enda þetta á sætri mynd af brúðhjónunum:)


þriðjudagur, júní 19, 2007

Í tilefni dagsins...























Hugsum bleikt í dag :)

miðvikudagur, júní 13, 2007

Ahhh...grilllykt í loftinu :)

Sá þennan texta og ákvað að þýða hann. Alveg ekta eitthvað;)

Eftir marga mánuði að kulda og vetri þá stígum við loksins inn í Grill-tíðina með tilheyrandi sól og hita. Þess vegna er mikilvægt að rifja upp þá mikilvægu hefð sem fylgir því að grilla utandyra, einu matseldina sem alvöru karlmaður tekur að sér, líklega út af áhættunni sem því fylgir.
Þegar alvöru karlmaður býðst til þess að grilla fer í gang eftirfarandi atburðarrás:

Hefð:

1. Konan fer út í búð og verslar í matinn.
2. Konan útbýr salat, sker niður grænmeti og brauð, gerir sósur og ef til vill eftirrétt.
3. Konan undirbýr kjötið til eldunnar, setur það á bakka ásamt nauðsynlegum áhöldum og mareneringum og fer með það út til mannsins sem situr þar við hlið grillsins með bjór í hönd.

Hér kemur mikilvægi parturinn:

4. MAÐURINN...SETUR...KJÖTIÐ...Á...GRILLIÐ!

Meiri hefð:

5. Konan fer inn til að leggja á borð diska, hnífapör og glös.
6. Konan fer út til að segja manninum að kjötið sé að brenna. Hann þakkar henni og biður hana um að koma með annan bjór meðan hann tekst á við þetta vandamál. Hún fer inn, nær í kaldan bjór og nýjan bakka undir grillaða kjötið og afhendir manninum.

Mikilvægt aftur.

7. MAÐURINN...TEKUR...KJÖTIÐ...AF...GRILLINU...
OG...RÉTTIR...KONUNNI!

Meiri hefð:

8. Konan ber á borð salatið, brauðið, servettur og sósur.
9. Eftir matinn hreinsar konan af borðinu og vaskar upp.

Og það mikilvægasta af öllu:

10. Allir HRÓSA MANNINUM og ÞAKKA HONUM fyrir frábæra eldamennsku. Maðurinn spyr konuna hvort að hún hafi notið frí-kvöldsins og eftir að sjá viðbrögð konunnar við spurningunni dregur hann þá ályktun að það sé ekki hægt að gera konur ánægðar!

GLEÐILEGA GRILL-TÍÐ ALLIR!!! :)





þriðjudagur, maí 29, 2007

Ðe sömmer...ahhh Æ kan fíl it :)

Grilllykt í lofti, grænt gras, gul fífl, sólgleraugun og þykki útijakkinn komin inn skáp:D Ohhh..alveg komin tími til:) Enda hlakka mér alveg mest mikið til þessa sumars því þetta verður fyrsta sumarið sem Hafsteinn tekur sér fullt sumarfrí síðan við byrjuðum saman. Það fylgir víst því að vera að reka eigin fyrirtæki að það gefst sjaldan tími til að taka sér frí. Heyrði t.d einu sinni sögu af manni sem borðaði bara skyr í öll mál og vann örugglega 12-14 tíma á dag í heilt ár þegar hann byrjaði með fyrirtækið sitt, og það borgaði sig vel hjá honum.
En já, fimmta sumarið okkar saman og loksins fær maður summerfrí með kæranum, heilar fimm vikur:D Mig langar samt svoldið að reyna að sannfæra hann um að taka út allt uppsafnaða sumarfríið sitt og vera í fríi í örugglega hálft ár en ætla samt bara að vera þakklát fyrir þessar 5 vikur:)


Ætlum allavega að skella okkur í sumarbústað í fríinu hans. Svo eru komnar 3 útilegur á planið, þar á meðal ættarmót hjá Grófarættinni minni. Hef ekki farið á þau ættarmót síðan ég var svona 11 ára svo það verður svoldið spennó. Reyndar kvíði ég því smá því að síðasta sumar þá var ættarmót í Tunguættinni minni en ég fór reyndar ekki. En mamma og pabbi fóru og mamma hringdi í mig á Laugardeginum skellihlægjandi. Sagði mér að það væri verið að sýna videó af gömlum ættarmótum og ég væri á einu klipsinu, þar er ég er líklega um 5 ára aldurinn. Á klipsinu er ljósmyndari að taka myndir af ættinni og ég átti að fara upp á svið til að vera með á mynd. Nema það að míns vildi sko ekki fara og henti sér í gólfið og öskraði og öskraði. Og þetta var SÝNT aftur og aftur á ættarmótinu og öll ættin víst að skemmta sér yfir þessu. "Er hún ennþá svona frek stelpan?" er örugglega spurning sem foreldrar mínir fengu á þessu ættarmóti:) Sem betur fer þá óx ég upp úr þessu um 10 ára aldurinn...ja svona eiginlega, hehe!

Þannig að ég kvíði því smá að Grófarættin eigi einhver videó af svipaðri hegðun minni...vona ekki, cross my fingers and hope to live!



En smá nostalgía. Man einhver eftir þáttunum "My so-called life" sem ríkissjónvarpið sýndi einu sinni? Claire Danes og Jared Leto léku í þeim. Allavega, ég lifði fyrir þessa þætti í den og var einmitt að rifja þá upp um daginn og fór á stúfana. Fann þessa æðislegu síðu þar sem þú getur horft á alla helstu þættina án þess að vera að downloada: http://www.tv-links.co.uk/index.do/1

Þeir eru m.a.s með nokkra þætti af "My so-called life" og ég fór í þvílíkt flassback:) Fannst ég vera orðin aftur 14 ára þegar ég sagði "Mæ-god" og "skiluru" í annarri hverri setningu :)


Jordan Catalano (the crush), Rayanne (klikkaða besta vinkonan), Rickie (samkynhneigði vinurinn), Danielle (óþolandi litla systirin), Sharon (afprýðissama fyrrverandi vinkonan), Angela (aðalpersónan) og Brian (nördalegi vinurinn).

Oooog, Jared Leto er auðvitað bara mesta hottí sem gengið hefur á þessari jörð! (Eins og ég hefði örugglega orðað það þegar ég var 14 ára, hehe!)

fimmtudagur, maí 17, 2007

I am Awake....:)

Ég og Hafsteinn fórum á yndislega tónleika í gær með Josh Groban. Ohh...þetta var himneskt. Hann syngur svo fallega að maður getur ekki annað en verið sammála þegar fólk segir að þegar hann hafi fæðst að þá hafi Guð gefið honum rödd frá einum af englunum sínum.
Það sem kom mér samt mjög á óvart hversu hógvær hann er og hvað hann gefur frá sér feimnislega strauma. Og hvað hann er mikill húmoristi, hann fékk mann oft til að hlægja á milli söngva.
Lagið "You raise me up" kom honum á kortið á sínum tíma og ég hélt mikið upp á það lag en þegar að nýji diskurinn kom út þá féll ég algjörlega fyrir laginu "You are loved". Hann byrjaði tónleikana í gær með því lagi og ég vissi alveg að ég myndi fá gæsahúð en svo fór ég gjörsamlega í væmnina og táraðist. Svo kom gæsahúðin og var með hana þangað til að ég kom heim. Alveg frábær upplifun!
Vona bara að hann komi aftur og hann nefndi það reyndar sjálfur að hann hefði fallið fyrir Íslandi og vonaðist til að fá að koma aftur þannig það er að vona það besta.
En þangað til ætla ég að láta upplifunina í gær, þessar myndir og "Awake" diskinn í botni duga. Mæli alveg með honum ef þið hafið ekki keypt diskinn að kíkja á hann:)


Á tónleikunum í gær.



sunnudagur, maí 13, 2007

Lagið á heilanum mínum þessa dagana er:




Þetta lag...Spilið það með að ýta á litla play- takkann...

Nema að textinn við "lagið mitt" yrði:

Hello-
I wish I was little more arty
I wish I was in a party
I wish I had an invite to that school
I would go there
I wish I had a rabbit in a hat with a bat
and a blablablabla....


Þið fattið hvað ég meina þið sem vitið...Vildi bara láta ykkur vita þau sem hafa verið að fylgjast með þessari umsókn minni!
Endilega kíkið á bloggið mitt á fimmtudaginn síðasta, þar er ég í aðeins betra stuði...

Peace out B/
Erla "in da mood" Anna

föstudagur, maí 11, 2007

Landafræðileg sýn á úrslit Júróvision

Þjóðirnar tíu, sem komust í úrslitin voru Hvíta-Rússland, Makedónía, Slóvenía, Ungverjaland, Georgía, Lettland, Serbía, Búlgaría, Tyrkland og Moldavía.

Sér einhver hvað er að þessari mynd? Ég segi allavega þetta: til að eiga möguleika á að komast einhverntímann í topp 10 í júróvision þá þurfum við að flytja Ísland til Austur-Evrópu! Kannski bara góð hugmynd, þá fengum við líka betra veður:)


fimmtudagur, maí 10, 2007

With love from me :D

Klikkið hér fyrir óvæntan glaðning! B)

laugardagur, maí 05, 2007

Flashback...

Fyrsta tónlistarmyndbandið sem ég man eftir að hafa horft á. Held ég hafi ekki verið meira en 4-5 ára gömul. Sat heilluð og horfði á það, fannst það svo fallegt og finnst enn. Enjoy:)

miðvikudagur, apríl 25, 2007

Sumarið komið???

Samkvæmt íslenska dagatalinu þá var sumardagurinn fyrsti í síðustu viku. Mér finnst það svoldið skondið þar sem að ég sé engin ummerki um sumarið. Ætti ekki bara að seinka þessum hátíðardegi um mánuð eða tvo? Bara pæling því að þá gæti maður notið þessa dags miklu betur. Meiri von á sól í Mai heldur en apríl:) En í anda þess að þessi dagur var nú haldin hátíðlegur í síðustu viku þá sendi ég ykkur bestu óskir um:





Annars er margt gott að frétta. Ég fór í 3ja daga ferð um norðurland með Hafsteini í síðustu viku. Hafsteinn var að setja upp kosningaskrifstofur fyrir ónefndan stjórnmálaflokk og ég fékk að fljóta með:) Stoppuðum m.a. á Blönduósi, Sauðárkróki, Ólafsfirði, Húsavík, Hvammstanga, Dalvík og Akureyri. Gistum á þessu ágæta hóteli á Akureyri í 2 nætur og rúntuðum svo út til bæjanna þess á milli.
Mér fannst frekar áhugavert að koma að svona mörgum bæjum á stuttum tíma. Hafði ekki komið á nokkrum af þessum stöðum og þetta var oft heljarinnar keyrsla.
Sá samt svoldið ógeðslega fyndið á Sauðárkróki. Ég sat í bílnum á aðalgötunni í svona 3 tíma á Miðvikudeginum. Það var brjáluð umferð á þessari götu. Fannst það svoldið furðulegt miðað við hversu smár bærinn er. En alltaf sá ég aftur og aftur sömu 6 manneskjurnar, hver í sínum bíl, að rúnta fram og til baka eftir þessari götu. Ég grínast ei, í 3 tíma, fram og til baka. En tvö þeirra töluðu reyndar í símann allan tímann þannig þetta var kannski ekki eins einhæft fyrir þau. En það fyndna er síðan það að á föstudeginum þá þurftum við að fara þangað aftur út af einhverju vandamáli með eina tölvuna og þá voru 3 af þessu sömu manneskjum aftur að rúnta eftir þessari götu, m.a ein af þeim sem að var í símanum allan tímann og hún var líka að tala í símann þegar ég sá hana þarna aftur. Mér fannst þetta svo bráðfyndið en um leið þá fannst mér ömurlegt fyrir þetta fólk sem býr í svona bæjum úti á landi að hafa ekkert betra að gera.

Þegar maður pælir reyndar svo í því þá er nú ekki mikið sem maður getur gert í bænum. Það er jú þetta típíska: Bíó, sund, skauta, leikhús, keila og pool. Go kart og paintball þeir sem fíla það og hafa efni á. Þegar maður er í útlöndum þá sér maður oft fullt af "activities" (hlutum sem hægt er að gera) fyrir alla. Alls konar sýningar, atburðir og staðir sem maður getur farið á og aðhafst eitthvað sniðugt. Það væri áræðinlega mjög vinsælt ef að það yrði opnuð einhverskonar skemmtanamiðstöð þar sem allir gætu fundið eitthvað við sitt hæfi, allt frá tölvuleikjum og menningarfræðslu til listasýninga og tónlistaratburða. Væri svona eins og risastórt leik-hús fyrir unga sem aldna:)



En á þessari svakalegu hugmynd ætla ég að enda þetta:)

Þar til næst:)

föstudagur, apríl 06, 2007

laugardagur, mars 24, 2007

10 things I hate about...

Mér finnst ekki gaman að hata eitthvað en það eru nokkrir hlutir sem ég virkilega þoli ekki. Eins og að skila inn möppu í LHÍ 23. mars og fá ekki svar fyrr en 10. mai. Eða þegar fólk svínar fyrir mig; þegar ruslatunnan mín er orðin full 3 dögum eftir að hún var tæmd af drasli sem við hentum ekki í hana; þegar veðrið er svona ömurlegt eins og er búið að vera síðustu daga; þegar ég fer í bónus og þeir eiga ekki allt sem mig vantar og ég þarf að fara í aðra búð; að þrífa heimilið mitt og 2 dögum seinna þá er aftur komið ryk út um allt; þegar þættir eins og Lost virðast aldrei ætla að sýna hvað er virkilega í gangi og láta mann bíða og bíða, þátt eftir þátt; þegar ég fæ mér rosalega flotta klippingu en ég virðist ekki geta greitt mér eins og hárgreiðslukonana gerði það þegar ég var nýkomin út af hárgreiðslustofunni; Mánudaga og að bíða á biðstofum. Því miður er fátt sem ég get gert við þessum hlutum og maður lærir smátt og smátt að sætta sig við þá og átta sig á því að ef þú getur ekki breytt hlutunum sem pirra þig, lærðu þá að láta þá ekki pirra þig.

En sem betur fer þá hef ég fundið lausn af einum af þessum 10 hlutum sem ég þoli ekki. Að bíða á biðstofum. Þið kannist við þetta, sitja á sama stólnum í "guð veit hvað langan tíma", þú áttir tíma kl 14 og klukkan er orðin 15, fullt af fólki á biðstofunni og þú reynir eftir mesta megni að mæta ekki augnaráði fólks og ofan á allt saman þá eru blöðin sem eru á boðstólnum frá árinu 1984 og segja þér að axlapúðar séu í tísku. En ég hef fundið ráð við þessu, 9 skemmtilegir leikir sem þú getur leikið til að létta þér biðina:





Leikur nr. 1
Blikkaðu augunum geðveikt hratt og lokaðu svo augunum mjög fast saman. Þá birtist skemmtileg ljósasýning þér!
(Mögulegur skemmtunartími: 1-5 mínútur)
Reyndu að sjá mismunandi munstur og stærðir á ljósum. Kannski færðu út áhugaverð munstur eða kannski færðu upp skilaboð sem undirmeðvitundin er að reyna að senda þér, eins og: “Farðu og gerðu eitthvað af viti”.

Leikur nr. 2
Sjáðu hversu lengi þú getur haldið nótu.
(Mögulegur Skemmtanatími: 4-20 mín)
Ekki kannski rosalega skemmtilegt en tíminn líður allavega miklu hraðar.. Taktu djúpt andann og reyndu að gefa eitthvað hljóð frá þér eins lengi og þú getur. Ef þú getur fáðu þá vin þinn eða einhvern á biðstofunni til að spila þennan leik með þér, þið getið þá gert þetta að keppni þar sem hinn aðilinn fellur úr leik ef hann hættir að gefa frá sér hljóð, hlær eða hættir að anda. (Ath. Áhætta: Það er möguleiki ef þú ert stödd/staddur á biðstofu á spítala að geðlæknir sjái þig og færi þig inn á geðdeild til rannsóknar).

Leikur nr. 3
Reyna að ekki hugsa um mörgæsir
(Mögulegur skemmtanatími 1-5 mín)
Þetta er sérstaklega erfitt, því þegar maður virkilega reyndir að gera ekki eitthvað, þá þarf maður að gera það.

Leikur nr. 4
Notaðu leynilega hugsanakraft þinn
(Mögulegur skemmtanatími: 5-10 mín)
Veldu einhvern í biðstofunni og reyndu að nota hugsunakraft þinn til að láta þá gera eitthvað, eins og að missa töskuna sína eða sparka í einhvern. Hver veit, ef þú æfir kraftana nógu mikið þá gæturu á endanum látið alla á biðstofunni leika leikrit fyrir þig.

Leikur nr. 5
Láttu sem þú ert vélmenni.
(Mögulegur skemmtanatími: 1-3 mín)
Þegar þú hreyfir þig til að ná í blað eða stendur upp til að hvíla bossann, hreyfðu þig þá eins og vélmenni. Notaðu hljóð-áhrif eins og “zzzzzzz” og þú getur síðan endað þetta á að látast sem að mótórinn sé bilaður og þú getir ekki hreyft þig. (Ath. Sama áhætta fylgir þessum leik og með leik nr. 2

Leikur nr. 6
Klóraðu þér.
(Mögulegur skemmtanatími: 1-3 mín)
Reyndu reglulega að finna alltaf upp á nýjum og frumlegum stað til að klóra þér á. Svo fylgir þessum leik stór plús, fólk gæti haldið að þú sért með eitthvað óþægilegt og smitandi og sest ekki við hliðina á þér, nóg pláss fyrir þig

Leikur nr. 7
Reyndu að gleypa tunguna á þér!
(Mögulegur skemmtanatími: 1-3 mín)
Það er ekki mikið að segja um þennan leik. Þetta er mögulegt en kannski virkilega heimskulegt. En plúsinn er sá, að ef þér tekst það, þá ertu þegar líklega staddur á sjúkrahúsi og einhver getur bjargað þér ef þér tekst þetta.

Leikur nr. 8.
Finndu upp á skrítnum kæk.
(Mögulegur skemmtanatími:5-10 mín)
Tileinkaðu þér skrítinn kæk, eins og að kippa hausnum hratt til hægri á nokkra sek. fresti eða standa upp og setjast hratt aftur niður.

Leikur nr. 9.
Gefðu frá þér lágt buzzz-hljóð.
(Mögulegur skemmtanatími:15-30 mín)
Vertu með eðlilegan andlitssvip og láttu eðlilega. Gefðu síðan frá þér lágt hmmmm-hljóð eða buzz-hljóð og sjáðu hvernig hitt fólkið á biðstofunni bregst við. Ath, mikilvægt er að halda andlitinu eðlilegu, annars gæti fólk haldið að þú værir eitthvað skrýtin/n.

mánudagur, mars 05, 2007

Halló bumba, er búi í þér?

Já, það er óléttuæði að ganga í kringum mig, mér finnst allir vera óléttir sem er í raun ekkert fjarri máli. Í öðrum saumarklúbbnum mínum er ein nýbúin að eiga og tvær óléttar. Í hinum saumó er ein nýbúin að eiga og ein ólétt. Bróðir pabba og konan hans eiga von á einu litlu og sama með frænku mína og konu meðeiganda Hafsteins. Je, ég er örugglega að gleyma einhverju en ef maður tekur bara þetta saman þá eru þetta 8 nýir eða væntanlegir einstaklingar í kringum mig:) Svo eru allavega tvær sem ég þekki sem eru að reyna. Úff, það er ekki frá því að maður heyri bjölluhljóma, hehe!




Ég finn óneitanlega fyrir smá sumarfiðringi þessa daganna. Sólin og sú staðreynd að það er komin mars fær mann til að hugsa um það hversu stutt er í sumarið. Það er alveg pottþétt mál að ég ætla að halda mig á landinu þetta sumar, engar sólarlandaferðir hér! Er alveg búin að komast að því að mér finnst bara íslenska sumarið langbest! Ekki of heitt en nóg sól til að maður verði happy:) Við erum að stefna á það að fara hringinn í sumar. Byrja á að tjalda á einum stað á leið norður. Stoppa síðan í viku á Akureyri en við ætlum að reyna að fá íbúð þar. Stoppa og tjalda svo einhverstaðar á austurlandi og stoppa svo aftur á hótel Vatnajökli áður en við höldum heim á leið. Kíktum á þetta hótel í fyrrasumar og það er rosalega fín staðsetning á því. Þannig þetta verða fimm stopp allt í allt en ætlum bara að tjalda 2svar sem er rosalega fínt. Hlakka mikið til því að ég hef ekki farið hringinn síðan ég var 5 ára:)


Route 1 in Iceland:)

Förum svo reyndar til úglanda þarnæsta vor eða haust. Ætlum að nýta inneignina vegna Búlgaríuferðarinnar sem við fengum í að fara til Parísar. Það verður rosalega spennandi því mig hefur dreymt að fara til Parísar frá því ég man eftir mér:D


Allavega, langar enda færsluna á mynd af hlut sem getur ekki verið sumarlegri í mínum augum og fæ svona hálfgerðan sumaryl þegar ég sé myndir af þessum blómum. Það er líklega vegna þess að þegar ég var lítil þá var eitt sólblóm sem stóð í garði á Suðurgötunni og þegar maður tók eftir að það blómstraði þá var sumarið komið í mínum augum:) Var einmitt svo heppin að sjá heilan akur af sólblómum í Búlgaríu, ekki smá fallegt:)

sunnudagur, febrúar 25, 2007

Við erum loksins komin með netið aftur eftir 2ja vikna vandræði:) Ég er búin að vera með smá fráhvarfseinkenni, vantaði fréttir af mbl og skoða bloggin og sonna, en nú er allt í orden:)Lítið að frétta, síðasta vika fór í að vera laserus en er orðin góð núna. Lét mig samt hafa það að fara í saumó hjá Gaiunum á þri og í afmæli hjá tengdó á fim. Sleppti því samt að fara út að borða með famelíunni í tilefni af 17 ára afmæli bróa míns á mið því ég var allt of slöpp þá. Frekar skrýtið að "litli" bró sé orðin 17 ára, við það að fá bílpróf svo hann geti krúsað um á nýja BMW-inum sínum. Svaka töffari. Manni finnst maður vera orðin svoldið gamall því manni finnst svo stutt síðan maður var sjálf 17 ára en C´est la vie;)Meðan ég var lasin þá stundaði ég þá iðju, sem flestir gera þegar þeir eru veikir, að horfa á TV. Ég er svo heppin að við erum með fjölvarpið og ég festist aðallega í tvem stöðvum þar. BBC Prime og BBC Food. Tvær rosalega fínar stöðvar. Á BBC Prime horfði ég sérstaklega á tvo þætti sem heita "Big strong boys" og "Changing rooms". Báðir þættirnir eru hönnunarþættir en í Big strong boys eru tveir hönkar sem ferðast um Bretland og breyta ljótum herbergjum hjá fólki. Þannig að maður eru að horfa á tvo stæðilega gaura smíða, mála og gera ýmislegt sem því fylgir sem er ekki slæmt. Og svo fær maður að sjá flotta hönnun og sniðugar hugmyndir sem er alls ekki slæm blanda;) Í "changing rooms" þá er einn kynnir sem er svona urban arty fartý típa og svo fær hann tvo hönnuði til að hjálpa sér að breyta tvem herbergjum. Kynnirinn fær sem sagt tvær manneskjur sem þekkjast, segjum sem svo að það væru systkini, stelpa og strákur. Stelpan á að breyta herberginu hjá bróðir sínum og bróðirinn á að breyta herberginu hjá systir sinni. En tvistið í þessu er þetta: Kynnirinn fær að vita hvað systirinn þolir ekki og hvað bróðirinn þolir ekki. Segjum að systirinn hati bleikt. Þá fer hönnuðurinn sem á að hanna herbergið hennar og hannar herbergi sem er með bleiku í. Bróðirinn kannski veit að hún þoli ekki bleikt en stundum veit hinn aðilinn það ekki. Og það er ekki smá spennandi að sjá síðan í lokin hvort að báðir aðilarnir fíli það sem hinn gerði fyrir annan. Og áskorunin hjá hönnuðinum er sem sagt að breyta áliti stelpunar á bleiku, gera það svo flott að hún gleymi því að hún hati bleikt. Stundum tekst það en stundum ekki, hehe!Á BBC food hef ég verið að glápa á tvo þætti. "Cupid´s dinner" og "Great british menu". Í Cupid´s dinner þá eru 3 strákar og 3 stelpur pöruð saman. 1 parið á síðan að elda forréttinn, 2 parið aðalréttinn og 2 parið eftirréttinn. Síðan er markmiðið að fá pörin til að verða skotin í hvort öðru en stundum líst kannski einum strák á stelpu sem er hluti af öðru pari og svoleiðis. Síðan í lokin þá eiga þau að velja hvern þau vilja fara á deit með og stundum velja þau þann sem þau voruð pöruð með en stundum ekki. Hljómar svoldið cheasy en hvað á stelpa að gera þegar hún er lasin, hehe! Í "Great british menu" þá eru helstu kokkar Bretlands að keppa um það hver fær að elda í stórri konungslegri veislu. Rosalega gaman að sjá hvað t.d. 5 michelin stjörnu kokkar eru miklir snillingar í eldhúsinu.Það versta við þessa tvo þætti er hversu svangur maður verður við að horfa á þá og hversu allur matur sem maður eldar virðist vera aumingjalegur miðað við þessa svakalegu girnilega rétti sem þeir virðast bara henda fram úr ermunum.Nú kvíði ég því bara rosalega þegar kemur að mánudeginum hvort ég nái að sleppa því að horfa á þessa þætti. Ég veit það allavega að ég mun eiga rosalega erfitt með að kveikja ekki á tv-inu á daginn:s En þegar maður hugsar um það hversu stutt er í lokadag umsóknarinnar í LHÍ þá verður það ekki erfitt. Eftir 23.mars fer mappan úr höndunum á mér og miðað við hversu óánægð ég er með allt sem ég hef gert þá er það nógu gott spark í rassinn. Þannig að niður með veikindi og sjónvarpsfjarstýringuna og upp með blöðin og blýantinn:)Chao bellas;)


laugardagur, febrúar 03, 2007

Góði Ipod...

Ipod vor,

Þú sem ert í hulstri,

Helgist þitt nafn,

Til komi þínir hljómar,

Verði þín tónlist,

Svo á jörðu sem á himnum.

Gef oss í dag vora daglegu tóna,

Og fyrirgef oss slæma smekki,

Svo sem vér og fyrirgefum slæma smekki útvarpsstöðva,

Og eigi leið þú oss í freistni,

Heldur frelsa oss frá vondri tónlist.

Am...nei ég meina Apple!


Ég elska Ipodinn minn þessa daganna. Ástæðan er sú að mér finnst úrval útvarpsstöðva ömurlegt eftir að fyrirtækið 365 sem á eiginlega allar útvarpsstöðvar keyptu þær einu 2 sem þeir áttu ekki og gátu eignast til þess eins að loka þeim til að útiloka samkeppni. Þessar stöðvar voru Kiss fm og x-ið. Kiss fm var minn bjargvættur þegar kom að útvarpinu. Þeir spiluðu akkúrat mína tónlist sem er blanda af 80´s, 90´s og góðri samtíðartónlist. Ok, sumum fannst Kiss fm og Fm 957 vera svipaðar stöðvar en mér fannst það alls ekki. Ok, Fm 957 er svosem ágæt en mætti aðeins slaka á í að spila lélega íslenska tónlist og ömurlega erlenda tónlist. T.d lög með gaur sem heitir Sean Paul og Rihanna. Mér finnst alveg brilliant að einhverjum gaurum í útlandinu hafi dottið í hug að láta þessar tvær manneskjur syngja lag saman, Sean Paul sem er með asnalegustu rödd í heimi og Rihanna sem getur ekki sungið en eftir að búið að setja röddina hennar í gegnum fullt af tækjum þá hljómar hún "ágætlega". Og hvað með þessa tryggð þessarar útvarpstöðvar við "frægar" íslenskar "Stjörnur". Fólk sem var frægt í den kemur með eitthvað la la lag og Fm 957 er bara...slef slef yfir laginu og ofspila þau í botn.



Ok, misjafn er smekkur manna en það er bara nákvæmlega málið. Fólk er misjafnt eins og það er margt og mér finnst því stórvanta að brúa ákveðið bil milli þessar útvarpstöðva sem eru í boði. Ok, ef þig langar að hlusta á tónlist þá þarftu að vera einhver af eftirfarandi típum: Ellilífeyrisþegi sem hlustar á dánarfregnir og jarðafarir og útvarpsleikrit, Tyggjókúlugella/gæji sem hlustar á blöðrupopp, Væmin húsmóðir sem hlustar á létt grátlög, Menningarviti sem hlustar ekki á tónlist, bara fólk tala, trúuð manneskja sem hlustar á lög um guð og trú, eða bresk manneskja sem langar að heyra fréttir frá heimalandinu. Það sem er með því skárra þó er Bylgjan því þau eiga það til að spila fjölbreytta og fína tónlist. Svo eru reyndar nokkrar góðar stöðvar á netinu eins og Ný-bylgjan og Voice en það er svoldið erfitt að vera nettengdur í bílnum sínum.



Það er því rosalega gott þessa dagana að geta plöggað Ipodinum sínum hvar sem er, hvort sem maður er í bílnum eða heima og notið tónlistar sem maður velur sjálfur:)

En þar til næst,

Erla Perla tónlistargúrú eða þannig;)


ATH! Þær skoðanir sem komu fram í þessu bloggi endurspegla ekki skoðanir Blogger.com;)

mánudagur, janúar 15, 2007

Góðar línur á boli:)

Fann þessar línur á netinu sem eru svona góðar hugmyndir að setja t.d. á stuttermaboli. Þær eru á ensku en ég skal reyna að þýða þær almennilega:)

Depression is merely anger without enthusiasm.

Þunglyndi er aðeins reiði án áhuga.


If Barbie is so popular, why do you have to buy her friends?

Fyrst Barbie er svona vinsæl, af hverju þarf maður þá að kaupa vini hennar?


What happens if you get scared half to death twice?

Erfitt að þýða þennan en það er bandarískt máltæki að segja: þú hræddir mig hálf dauðan: you scared me half to death. En línan hérna er sem sagt: Hvað gerist ef þú verður hræddur hálf dauður tvisvar?


Cleverly Disguised As A Responsible Adult

Gáfulega dulbúin sem fullorðin ábyrgðarfull manneskja


All Men Are Animals; Some Just Make Better Pets

Allir menn eru dýr; sumir eru bara betri gæludýr


None of us are virgins, life has screwed us all

Engin okkar er hrein(n) mey/sveinn. Lífið fokkar í okkur öllum.


I tried sniffing coke once, but the ice cubes stuck in my nose

Ég reyndi að sniffa kók einu sinni, en ísmolarnir festust í nefinu á mér.


Dain bramaged

Skeilahaði (heilaskaði)


Does the noise in my head bother you?

Truflar hávaðinn í hausnum á mér þig?


A clear conscience is usually the sign of a bad memory

Hrein samviska er yfirleitt merki um slæmt minni.


OK, so what's the speed of dark?

Ok, svo hver er hraði myrkursins?

Já, væri ekkert á móti því að eiga boli með eitthvað af þessu setningum á, finnst þær snilld:)


Hérna er síðan í lokin strípa frá http://www.fjandinn.com/arthur/ en þeir eru bara snilld. Hægt er að fá allar sögurnar þeirra prentaði á boli...bara cool;)

Klikkið á myndina ef ykkur finnst textinn óljós:)


miðvikudagur, janúar 03, 2007

Recap um jólin og áramótin:)

Jæja, þá eru jólin að lokum komin. Ja, allavega þessir dagar sem mest fer um. Þrettándinn á Laugardaginn og verðum þá með foreldra okkar í mat, fínt að kveðja jólin þannig:)

En þetta voru hin bestu jól og áramót. Fórum í miðbæ Rvk á Þorláksmessu og hittum þar vini hans Hafsteins sem er árlegt dæmi hjá okkur. Á Aðfangadag fórum við til Tengdó í mat. Þar voru einnig öll systkini hans Hafsteins (Elísabet, Daði og Nonni) og maðurinn hennar Elísabetar og 3 börn þeirra. Þannig þetta var fjölmennustu jól sem ég hef upplifað lengi auk þess sem að ég hef ekki verið með börnum á jólunum síðan að bróðir minn var lítill en hann fær b.t.w. bílpróf í febrúar þannig að það er laaangt síðan:) Það var rosalega gaman að sjá spenningin og gleðina hjá krökkunum þó að á tímabili þá hafi þetta verið svoldið skondið. Krakkarnir komu sér fyrir undir trénu næstum því bókstaflega og svo sá maður bara jólapappírinn í tætlun fljúga frá jólatrénu, hehe! Eftir það fórum við svo til Mömmsu og Pabbalings að opna pakkana með þeim og Ömmu og Afa.

Við fengum margar og æðislegar gjafir. T.d. Loftljós, rúmföt, 2 veggmyndir og gjafabréf fyrir náttborðum frá Ma og Pa, styttu frá Bróa, Hnífaparasett frá Ömmu og Afa, 3 veggmyndir frá frænku minni, Stóran súpupott sem var örugglega hannaður af Nasa frá Tengdó og blandara/matvinnslutæki frá öðrum bróður Hafsteins. Frá hinum bróður hans fengum við svo sitthvora gjöfina, ég fékk ilmvatn og body lotion og Hafsteinn fékk Pink Floyd DVD. Frá systur hans Hafsteins fékk ég rosalega flotta inniskó frá Victoria secret, ekki smá mjúkir:) og líka sjampó og sturtusápu frá Victoria secret og Hafsteinn fékk frá henni skyrtu og bol. Svo fékk Hafsteinn bók frá meðeiganda sínum og frá leynijólasveininum í Club Seven fékk ég svona andlitskremasett frá Body shop. Þá held ég að þetta sé allt upptalið;)

Ég er rosalega ánægð með allt sem við fengum og þakka kærlega fyrir okkur:)

Mér finnst líka alveg frábært hvað mamma var sniðug í að "velja" jólagjafirnar okkar en hún bað mig um að koma með sér í bæinn fyrir jól og kaupa jólagjafir með sér. Svo fylgdist hún með öllu því sem mér fannst flott og lagði það á minnið. Við fórum meðal annars í Next (home) og við Hafsteinn vorum einmitt að undirbúa makeover á svefnherberginu okkar og ég var búin að hanna smá svona look fyrir herbergið. Ég sá svo marga hluti inni í Next fyrir svefnherbergið að ég fékk bara æði:) Langaði að kaupa allt en mamma ráðlagði mér að skoða þetta frekar þegar við værum búin að mála og svona, reyna að stoppa mig að kaupa þetta svo hún gæti keypt þetta í jólagjöf handa okkur:) Þannig að það sem við fengum frá Ma og Pa, Bróa og frænku minni voru hlutir sem ég var búin að sjá og fannst svo æðislegir. Ég málaði svo svefnherbergið viku fyrir jól og það leit ekki smá vel út, enda vorum við komin með svo mikla leið á þessum dökka lit á veggjunum. Og núna eru allar myndirnar og allt komið upp nema ljósið reyndar og herbergið er ekki smá flott, ég er rosalega ánægð með það:D

En já, nóg með það. Höfðum það rosalega rólegt og næs milli jóla og nýárs. Hafsteinn tók sér frí einn dag og við notuðum það vel í chillerí og svoleiðis. Svo fórum við til Ma og Pa á gamlárs og vorum þar með Bjarna, bróðir Pabba, konu hans og barni (eða unglingsstelpu, maður má víst ekki kalla hana barn lengur;) Fengum dádýr í matinn sem var jummí gott þangað til að Pabbi sagði: "Hvernig smakkast Bambi?". Þá fékk ég mér bara nautakjötið sem var í boði fyrir þá sem borðuðu ekki dádýr, hehe! Horfðum svo á Skaupið. Ok, ég hló næstum því jafn mikið af Kaupþingsauglýsingunni sem var sýnd á undan Skaupinu og af Skaupinu sjálfu. En ef maður horfir á björtu hliðarnar þá hló ég aldrei þegar Spaugstofumenn voru með Skaupið. Ekki það að það komu rosalega góðir sketsar inni á milli og svona laumulegir brandarar kitluðu hláturtaugarnar eins og í heilsuhúsinu: "Áttu ólívur? Meinaru Ólívur Ragnar Grímsson?". Jamm, þannig að þetta var bara fín byrjendatilraun hjá þessum óreyndu Skaupsmönnum og væri ekkert á móti að þeir fengu að spreyta sig aftur á næsta ári.

Eftir miðnætti kom svo fleira fólk til Ma og Pa og var orðið ansi fjölmennt þar. Nýársnótt var síðan hin ágætasta fyrir utan hvernig hún endaði. Ætluðum í partý hjá vini hans Hafsteins en eftir smá drama og það að pissfull rússnesk kona lagði álög á mig um að ég myndi ekki lifa lengur en 5 ár þá datt allur botninn úr kvöldinu og við ákváðum að fara bara heim og vorum komin heim um 3:40. Segi ykkur betur frá þessari rússnesku konu þið sem forvitin eru face to face:)

En við erum ákveðin í því að á næsta ári að borða bara ein saman á gamlárs og bjóða svo fámennum og skemmtilegum hóp til okkar og þá verði bannað að vera með drama;) hehe!

En fall er faraheit og ég held að árið 2007 verði fantalicious ár fyrir alla:)

Jæja, ætla að hætta þessu ritgerðarrauli og sorry að það fylgja engar myndir með blogginu, nennti ekki að leita á google í þetta skiptið;)

Kiss og kossar*



laugardagur, desember 30, 2006

Uppskrift af fullkomnum áramótum! : )

Fyrsta: Klæddu þig upp! Skelltu þér í föt sem láta þig líða vel en um leið láta þig líta út eins og "Femme fatale" v.s. "Drop dead gorgeus!". Um að gera að mála sig til að fullkomna útlitið;) Svört gríma með fjöðrum fullkomnar svo hálfgert dularfullt glamúrgelluútlit;)



Annað: Ekki er verra að hafa góðan gæja (eða gellu) við höndina um kvöldið. Ef ekki þá er um að gera að fiska einhvern álitilegan út um kvöldið og athuga hvort þú náir ekki að stela nýárskossi frá honum. Það er allavega gott að geta deilt kvöldinu með einhverjum nánum;)



Þriðja: Skelltu í þig flottu áfengi. Prufaðu drykki sem þér finnast vera "high class" og flottir, eins og James Bond með sinn Martini. Mojhito er t.d. sá vinsælasti í dag. Kvöldið verður allavega miklu betra ef þér finnst þú svífa um á litlu alkahólsskýji;)



Fjórða: Kick back, have fun and let go! Nýtt ár er í vændum og gamla árið að baki. Ný byrjun og ný tækifæri! Slepptu af þér böndunum og skemmtu þér eins og engin væri morgundagurinn. ;D



Takk fyrir gamla árið og hafið það æðislega gott á morgun og ég vona að þið eigið "Kick ass" gamlárskvöld!

GLEÐILEGT NÝTT ÁR!!!

miðvikudagur, desember 20, 2006

Kæri Jóli,

Þegar ég var lítil, svona um 7 ára gömul þá vildi ég biðja jólasveininn um svoldið sem mig langaði rosalega í. Ég náði mér í blað og penna og reyndi eftir mesta megni að skrifa rétt og fallega en bréfið hljóðaði svona:

Kæri jóli,

Ég er búin að vera rosalega góð þetta árið. Ég hef hlýtt mömmu í einu og öllu og herbergið mitt er næstum því alltaf hreint. Ég læri heima og borða alltaf allan matinn minn, þó að það sé fiskur í matinn. Þess vegna langar mig að biðja þig um svoldið sem ég veit að fáir fá en þar sem ég hef verið svo rosalega góð þá vona ég að þú getir séð þig fært um að veita mér þetta. Mig langar svo rosalega í lítinn bróður. Gerðu það, gefðu mér lítinn bróður!

Þín, Erla Anna.


Daginn eftir fékk ég svar frá jólasveininum:

Kæra Erla Anna,

Ég veit að þú ert búin að vera mjög þæg þetta árið og þess vegna er ekkert mál að láta verða að ósk þinni. Það er bara eitt sem þú þarft þá að gera, vinsamlegast sendu mér bara mömmu þína...

Þinn, Jóli.




Hehe, en að öllu gríni sleppt þá vona ég að þið eigið frábær jól og þau verði full af gleði, kærleika, frið og góðum mat. Langar síðan að enda á smá texta sem ég fann, hann er reyndar á ensku en vona að það sé í lagi;)

"Hallo! Santa, pray stop on your way.
And take my Greeting for Christmas Day,
With fondest wishes to friends so dear,
Bringing them joy and Christmas cheer."




mánudagur, desember 11, 2006

Fróðleiksmolar Erlu um Jólin:)

Hvaðan kemur Jólasveinninn?

Jólasveinninn eða Sinterklaas er afbrigði af hollenskri þjóðsögu sem er byggð á sögulegu persónunni Saint Nicholas eða heilugum Nikulás sem var biskup. Hann gerði allt sem í veldi sínu stóð til að hjálpa þeim sem þurftu, veiku og þjáðu. Venjulega er Jólasveinninn sýndur sem góður, feitur, glaður og virðulegur maður í rauðri kápu skreytt með hvítum feld, með hvítt skegg og græna eða hvíta hanska.


Jólasveininn eins og við þekkjum hann best:)


Þessi ímynd jólasveinsins er fengin frá St. Nicholas þar sem að upprunalegu biskupklæðin hans voru ekki ósvipuð. Oft er talið að þessi ímynd jólasveinsins sem komin til vegna Coca Cola auglýsingar sem að Haddon Sundblom hannaði fyrir fyrirtækið og því lengi verið talið að þessi ímynd jólasveinsins sé tilkomin vegna Coca Cola því að litirnir hvítur og rauður eru litir fyrirtækisins. Þetta er hins vegar mikill misskilningur og frekar ætti að segja að Sundblom hafi fengið hugmyndina sína af ímynd jólasveinsins frá hollensku þjóðsögunni.


Coca Cola auglýsing þar sem að barnið hefur skilið eftir kalt kóka kóla fyrir Jóla:)



Sankti Kláus eða St. Nicolas biskup.

Heimili jólasveinsins er yfirleitt sagt vera á Norðurpólnum, Norður Kanada, Korvatunturi í Finnlandi, Lappland, Drobak í Noregi, Dalecarlia í Svíþjóð eða á Grænlandi en staðsetningin á heimilinu hans fer allt eftir hefð hvers lands fyrir sig. L. Frank Baum, amerískur rithöfundur, staðsetti t.d. Jólaveininn í Hinum hlæjandi dal, Hohaho.

Í upprunalegu hollensku þóðsögunni þá bjó Sinterklaas á Spáni og með honum var stór hópur af svörtum þjónum sem kallaðir voru Zwarte Pieten eða Svartir Pétrar.

Ímynd jólasveinsins er þó mismunandi eftir þjóðum og á hver þjóð sitt afbrigði af honum. Íslenska útgáfan af jólasveininum varð t.d. til á 17. öld þar sem það var ekki bara einn jólasveinn heldur 9 eða 13 bræður, sem voru sýndir sem óþekkir andar. Þeir birtust, einn í einu, þrettán dögum fyrir Jól og stálu mat, gerðu föt drullug og fleiri skemmdarverk fórnalömbum sínum til mæðu. Eins og við sjáum í dag þá hefur þessi ímynd mildast aðeins og blessaðir kallarnir eru t.d. farnir að gefa gjafir.

Í flestum löndum er þó aðeins einn karakter sem er ímynd jólanna. Þessi karakter er mismundandi eftir löndum eins og kom fram áðan og gaman að forvitnast um hvernig jólahefðir eru í öðrum löndum. T.d:

Jól í Afríku

Jólin í Afríku er sumarhátíð. Jólasöngvarar fara um borgi og bæji og syngja falleg jólalög fyrir íbúana á Aðfangadagskvöld. Kirkjuþjónusta er haldin á Jólamorgun en sú þjónusta er yfirleitt haldin til að tilbyðja Jesú og halda upp á afmæli hans. Allir sem mæta koma með gjafir handa Jesú og leggja þær á stalla sem gerðir eru fyrir þjónustuna.

Heimilin eru skreytt með trjágreinum og á mörgum heimilum er lagður svokallaður Jóla-feldur á gólfin þar sem gjafirnar eru lagðar. Á háttatímanum á Aðfangadagskvöld setja börnin upp sokka í von um að fá gjöf frá Föður Jólanna.

Til að óska fólki í Afríku gleðilegra jóla á tungumáli þeirra er sagt: Gesëende Kersfees.



Faðir Jólanna í Afríku:)

Jól í Brasilíu

Í Brasilíu er fjölbreyttur hópur sem einkennist af fólki af mismunandi uppruna en sem fyrrum nýlenda Portúgala þá eru margar af þeirra hefðum komnar þaðan.

Ein hefðin er að skapa einskonar helgimynd eða Presépio. Þær eru mismunandi gerðar en yfirleitt er það ákveðið umhverfi sem er skapað í anda jólanna og fæðingu Jesú. Presépio er algengast í norð-austur Brasilíu. Í dag eru helgimyndirnar settar upp í Desember og hægt er að sjá þær í kirkjum, heimilum og búðum.


Presépio eða helgimynd.

Papai Noel eða Faðir jólanna er sá sem færir gjafirnar í Brasílíu. Samkvæmt trúnni þá býr hann í Grænlandi. Þegar hann kemur til Brasilíu þá klæðist hann yfirleitt silkifötum vegna sumarhitans.

Í Brasilíu er fólk dansandi og syngjandi og hátíðarhöldin halda áfram fram að 6. Janúar sem að Brasilíubúar kalla “Þriggja Kónga dagurinn”. Sá dagur er talin vera dagurinn sem að vitringarnir þrír heimsóttu Jesú til að færa honum gjafirnar.

Til að óska fólki í Brasilíu gleðilegra jóla á tungumáli þeirra er sagt: Feliz Natal!



Jól í Kína

Börn í Kína sem hafa kristna trú skreyta tré með litríkum skreytingum. Þessar skreytingar eru yfirleitt gerðar úr pappír í allskonar formum, t.d. blóma eða lampa. Þau hengja einnig upp sokka í von um að “Gamli maður Jólanna” fyllir þá með gjöfum og góðgæti. Kínversku jólatréin eru kölluð: “Tré ljósanna”. Jólasveinninn þeirra er kallaður Dun Che Lao Ren sem þýðir “Gamli maður jólanna”.

Þau börn í Kína sem halda ekki upp á kristna trú kalla þessa árstíð Vorhátíð og fagna henni með hátíð sem inniheldur góðan mat og tilbeiðslu forfeðra sinna. Börnin eru miðpunktur þessarar hátíðar, þau fá ný föt og leikföng, borða góðan mat og sjá flugeldasýningar.

Til að óska fólki í Kína gleðilegra jóla þá er það mismunandi hvort að það sé á Mandarín eða Katónísku tungumáli: (Mandarin) Kung His Hsin Nien bing Chu Shen Tan og (Catonese) Gun Tso Sun Tan'Gung Haw Sun.



Jól í Grikklandi

Eftir 40 daga föstu er jólunum fagnað með eftirvæntingu hjá fullorðnum og börnum. Matarborðin eru yfirfull af gómsætum mat, t.d. nýslátruðum svínum og brauðhleifa sem kallast Christopsomo eða Brauð Krists.

Jólatré eru ekki algeng í Grikklandi. Á næstum hverju heimili er aðalmerki jólanna viðarskál. Yfir henni hangir viðarkross skreyttur með basilgreinum. Í skálinni er smá vatn til að halda basilgreininni lifandi og ferskri. Einu sinni á dag þá fer fjölskyldumeðlimur, yfirleitt er það móðirin, að skálinni og dýfir krossinum og basilgreininni í heilagt vatn og notar það til að svetta smá vatni í hvert herbergi hússins til að blessa það.

Á jólunum er ekki mikið um gjafir en þess í stað eru litlar gjafir gefnar á spítala og til munaðarleysingja. Prestar fara stundum milli húsa og svetta heilugu vatni til að losna við illa anda sem gætu leynst í húsum fólks.

Í sumum Grískum heimilum eru sígræn tré skreytt og stjarna sett á toppinn. Gjafir eru þá gefnar þann 1sta Janúar, dagur sem er kallaður St. Basil dagurinn.

Til að óska fólki í Grikklandi gleðilegra jóla á tungumáli þeirra er sagt: Kala Christouyenna!



Jól í Ítalíu:

Jólatíðin á Ítalíu stendur yfir í 3 vikur. Hún byrjar 8 dögum fyrir jól og kallast Novena. Á því tímabili fara börnin milli húsa og fara með jólaljóð og söngva.

Ströng fasta byrjar 24 tímum fyrir Aðfangadagskvöldið og að henni lokinni hefst fagnaðar máltíð. Gjafir eru gefnar í öðruvísi formi en hefur þekkst en Ítalar nota svokallaða “Lukkuskál”. Í henni eru pakkar en sumir pakkarnir innihalda eitthvað en aðrir eru bara tómir kassar. Allir fá gjafir en þú verður að stóla á heppnina hvort að gjöfin þín innihaldi eitthvað. Í ljósaskiptunum er kveikt á kertum, bænir eru beðnar og börnin lesa ljóð.

Á hádegi á jóladag fer Páfinn með blessunarorð til fólksins sem safnast hefur saman á stóru Vatikan torginu.

Börnin fá síðan gjafir þann 6. janúar, dagur sem kallaður er “Epiphany”. Samkvæmt hefðinni þá eru gjafirnar gefnar af góðri norn á kústi sem kölluð er Befana.

Til að óska fólki á Ítalíu gleðilegra jóla á tungumáli þeirra er sagt: Buone Feste Natalizie!



Befana, góða nornin sem kemur með gjafirnar.


Jól í Rússlandi

Í Rússlandi er trúarlegu hátíð jólanna skipt út af Vetrarhátíðinni en eitthvað af gömlu venjunum er haldið við í sumum landshlutum Rússlands.

Í hefðbundinni rússneskri Jólahátíð er farið með sérstakar bænir og fólkið fastar, stundum í allt að 39 dögum. Fastan hættir þann 6.Janúar sem er Aðfangadagur Rússa. Þegar fyrsta kvöldstjarnan birtist þann dag þá má hætta að fasta og 12 rétta kvöldmáltíð hefst. Kvöldmáltíðin er heiðruð lærisveinunum 12 og þess vegna er hún 12 rétta.

Babushka eða Babúska er hin hefðbunda jólafígúra sem dreifir gjöfum til barnanna. Nafnið hennar merkir Amma og samkvæmt trúnni er sagt að hún hafi neitað að fara með vitringunum til að færa Jesú gjafirnar vegna þess hversu kalt veðrið var. Hinsvegar, sá hún eftir ákvörðuninni sinni og fór af stað með fulla körfu af gjöfum til að ná vitringunum. En hún fann hvorki vitringana né Jesú og þess vegna heimsækir hún húsin í Rússlandi á jólunum og skilur eftir gjafir fyrir góðu börnin. Einnig er til útgáfa af föður jólanna eða Dedushka Moros (Afi Jólanna).

Til að óska fólki í Rússlandi gleðilegra jóla á tungumáli þeirra er sagt: Pozdrevlyayu s prazdnikom Rozhdestva is Novim Godom!



Babúska. Mörgum finnst Babúska og Befana eiga mjög svipaðan uppruna.


Jól í Frakkalandi:

Á Aðfangadagskvöld skilja börnin eftir skóna við arininn svo að Pere Noel (faðir jólanna) geti fyllt þá með gjöfum. Á Jólamorgun sjá þau einnig að sælgæti, ávextir, hnetur og lítil leikföng hafa verið hengd á tréð.

Næstum hvert franskt heimili setur upp helgimynd eða créche tileinkuð jólunum, svipað eins og tíðkast í Brasilíu. Créche er oft skreytt með litlum leirfígúrum sem kallast santons eða dýrlingar. Jólin eru tími fjölskyldunnar, gleði og dýrkunnar. Á jólakvöldi eru kirkjurnar fallega lýstar upp og hringja út jólalög með kirkjubjöllunum.

Börnin skilja skóna sína eða viðarklossa sem kallast “sabots” eftir úti til að Pére Noel (faðir jólanna) geti fyllt þá með gjöfum. Í norður Frakklandi fá börnin gjafir þann 6. desember sem er St. Nicolas dagur í stað þess að fá gjafir á jóladag. Fullorðna fólkið gefur hvort öðru gjafir á Nýársdag.

Til að óska fólki í Frakklandi gleðilegra jóla á tungumáli þeirra er sagt: Joyeux Noel!


Jebb, þetta var fræðandi. Vonandi kom þetta ykkur í jólaskap, ég er allavega komin í dúndrandi hóhóhó skap og vitrari um jólin, hehe! Mikið af þessum upplýsingum er bein þýðing af Santas.net og Wikipedia og býst því við að allt þetta passi.


En skemmtið ykkur vel í jólaundirbúningnum, ef ekki þá vona ég að þessi lesning hafi hjálpað eitthvað:Þ

Kys og juleknus :*

fimmtudagur, nóvember 30, 2006

How clean is your house?

Hellú:)

Er búin að vera ógó dugleg síðustu daga. Ég og Hafsteinn þrifum geymsluna á sunnudaginn síðasta en það var búið að sitja á hakanum allt of lengi. Við fylltum vinnubílinn hans Hafsteins 2svar sinnum með drasli! 2svar sinnum: that´s alot of junk in da trunk! Kassar, gamalt dót og flöskur sem voru alls andvirði 5000kr. Flestir myndu kannski ekkert vera að segja neinum frá þessu en ég er bara svo stolt af okkur að hafa þrifið þessa h****** geymslu á einum degi að ég get ekki annað:Þ Enda þegar ég opna geymsluna núna fæ ég hálfgert sjokk í hvert skipti og það tekur mig smá tíma að átta sig á að ég á svona stóra og fína geymslu:) Sömu sögu er að segja um fataskápana inn í svefnherbergi. Ekki það þó að draslið hafi verið jafn mikið þar inni en ég gerði það erfiðasta sem ég hef nokkrum sinnum gert á ævinni. Flokka fötin okkar í tvo punka: Föt sem við notum reglulega og föt sem við höfum ekki notað í dágóðan tíma. Svo náði ég í svartan ruslapoka og fór með ÖLL fötin sem við höfðum ekki notað lengi, pössuðum ekki í eða voru bara löngu farin úr tísku og með þau í fatagáminn í Sorpu. Yfirleitt hugsaði maður: "Æji, þetta gæti komist í tísku aftur" eða "kannski passa ég aftur í þetta einhvern daginn" eða "ég gæti notað þetta sem svona málningaföt og svoleiðis". Nei, engin miskun og út í Sorpu með þetta!:D Þannig að nú er fullt að góðu plássi í skápunum okkur....til að byrja að safna nýju drasli í! Hehe! En svo kláraði ég alla jólahreingerninguna í gær (á reyndar þvottaherbergið eftir en þið segjið jóla ekkert frá því, er það nokkuð?:Þ) og íbúðin orðin voða flott. Ég er meira að segja búin að skreyta, don´t call me crazy!;)

Hefði ekkert verið á móti því að fá þær til að hjálpa mér:)

En nóg að hreingerningartali:) Er að fara á jólahlaðborð í kvöld með fjölskyldunni minni í Perlunni. Fórum einmitt á jólahlaðborðið á Hótel Borg síðasta föstudag í boði vinnunnar og maður var eiginlega ánægður með að hafa ekki borgað fyrir þetta sjálfur því að þetta var nú ekkert spes. Ég þekki þetta þó kannnski ekki hvernig svona jólahlaðborð eru, þetta var í fyrsta skipti sem ég fer á svoleiðis en já, þetta var ekki alveg eins og ég bjóst við. Meira að segja þegar við spurðum hvort við gætum fengið Malt og Appelsín þá sagði þjónninn: Nei, við eigum ekkert Appelsín, en við eigum Malt og Fanta! Ye, right!!!! En ég er búin að heyra að jólahlaðborðið á Perlunni sé rosalega flott og þetta verður í fyrsta skipti sem ég fer í Perluna þannig þetta er svoldið spennó:)

Eins og Rachel Ray segir: Yammo!!!

Svo á Laugardaginn er Saumó-föndur í Gaia-klúbbnum mínum og ég er búin að kaupa rosa sætt jólasveinapar. Ég málaði einmitt jólasveininn í Saumó-föndrinu með Club Seven saumónum mínum síðasta laugardag og ætla að mála konu jólasveinsins á laugardaginn næsta. Jóli kom mjög vel út þó ég segi sjálf frá og verður spennandi að sjá hvort að Sveinka verði ekki fín líka:)
Svo á sunnudaginn verður Aðventukvöld Fríkirkjunar sem er alltaf jafn gaman að fara á. Það má því alveg segja að eftir þessa helgi þá verður maður komin í bullandi jólafíling:)

Too cool for school;)

En ætla að láta þetta duga í bili. Hafið það gott sweeties og endilega njótið jólaskipulagningarinnar, þ.e.a.s þið sem eruð ekki í prófum ;Þ

Ekkert stress, verið hress, Bless:)

þriðjudagur, nóvember 14, 2006

Rúsínur, tvífarar og freyðibað...

Ég og Hafsteinn skelltum okkur í sumarbústað um helgina og höfðum það ógó gott. Tókum með okkur flakkarann og góðan mat og mareneruðumst í heita pottinum. Fingurnir mínir eru ennþá eins og rúsínur, hehe. En rosalega gott að fara svona út fyrir bæinn og slappa af, værum alveg til í að eiga einn svona lítinn sætan bústað:Þ



Hamingjusamar rúsínur;)


Annars var ég að horfa á 6 til sjö í gær á Skjá einum og sá þar Jóa og Góa sem sumir kannast kannski við úr leikaraheiminum. Ég kannast þó helst við Jóa sem Jóa Priestley eins og hann var kallaður hérna í Firðinum og maður hefur séð hann gera góða hluti sem leikari og bara almennur skemmtanagaur. En hann og þessi Gói voru að kynna nýjan disk sem er ætlaður fyrir börn og þetta hljómaði mjög áhugavert það sem þeir voru að gera. Svo fóru þeir upp á svið og tóku lagið og þegar þeir voru í miðju laginu þá fannst ég mér sjá svo mikinn svip á Jóa og Brendan Fraser sem þið kannist eflaust við úr myndum eins og "The Mummy", "Bedazzled" og "Georg of the Jungle". Ég veit ekki, kannski er þetta bara rugl í mér og Jói var reyndar með skegg í þættinum en endilega segið mér ef þið sjáið svið með þeim eða ekki:Þ

Jói

Brendan Fraser


Annars er allt gott að frétta. Mams og Pabs voru að koma frá USA og mamma keypti tonns af fötum handa mér, hálsmen og ilmandi gott úr Victoria´s secret, m.a. bubble bað úr uppáhaldsilminum mínum þannig að mín mun bara eiga heima ofan í baðkarinu á næstunni. Ég held það sé bara ágætt að hlýja sér með góðu baði miðað við vetrarveðrið sem er búið að vera að skella á okkur undanfarið. En það þýðir víst ekki að kvarta, allavega ekki í bili því ef að þessi blessaði golfstraumur fer að stoppa eins og kom fram í fréttunum um daginn, þá munum við grátbiðja um þetta veður sem við höfum í dag:)

En always look on the bright side and dig into some bubbles;)

miðvikudagur, nóvember 08, 2006

Erla Tölvunörd :Þ

Jamm, ég er orðin nörd.

Fór í bæinn í gær og leitaði að skyrtu með brjóstvasa, kakibuxum, stórum klunnalegum gleraugum með límbandi í miðjunni og litlum vasareikni fyrir brjóstvasann. Fann ekkert. Þannig að það sést kannski ekki á mér að ég er orðin nörd en ég er fíling it...:)


Hann lítur út eins og mér líður....:/

Ástæðan fyrir þessari yfirhilmandi tilfinningu er sú að ég hef verið að spila tölvuleik undanfarið sem ég svo kláraði í vikunni. Ég! Kláraði tölvuleik! Þetta er reyndar sá allra skemmtilegasti leikur sem ég hef nokkru sinni spilað (hef nú ekki spilað þá marga, eina sem ég get talið er Super Mario Bros og Tetris í Game boy-inum mínum gamla) en leikurinn heitir Desperate housewives: The game. Ok, ég elska þættina enda eru þeir mesta snilld. Svo kynnti Hafsteinn mig fyrir leiknum og viðbrögð mín voru bara: Já, tölvuleikur, sniðugt:s
Svo fór mín að prufa að spila og þetta varð svo ógó spennó að ég varð bara húkt, komast að leyndarmálum fólks, leysa vandamál og morðmál, úhh, alveg að gera sig sko;)



Var samt svoldið súr að hafa klárað leikinn og Hafsteinn bauðst til að ná í annan leik sem er byggður á CSI þáttunum og er svipaður í uppbyggingu. Mín afpantaði pent enda komið nóg af svona nördastælum að mínu mati;) Ég er nefnilega líka orðin svo dugleg í tölvunni og bjarga mér í því sem ég lét Hafstein sjá um áður. Finna tónlist til að setja á Ipodinn, enda verður hann vel fullur á næstunni. Fann um daginn Top 100 rock songs of the 90´og það verður sko stuð að hlusta á það. Fann líka Top 100 dance songs of the 90´ sem ég ætla reyndar að bíða aðeins með að ná í en eins og sást hérna um daginn þá er ég komin í góðan 90´s gír þessa dagana:). En eftir að maður er búinn að ná í þetta þá held ég að það sé komin góð ástæða til að losa sig við nördatilfínninguna með góðu 90´partýi;) hehe!

En þar fyrir utan. Mín komst í smá jólastuð í gær eftir að hafa keypt dót sem mig vantað til að föndra jólakortin í ár. Ég get svarið það, ég geri þetta alltaf erfiðara og erfiðara fyrir sjálfa mig að gera þessi kort eftir hverju ári sem líður. Miðað við mína heppni þá mun ég líma saman puttana mína svona 20 sinnum og henda svona 15 misheppnuðum tilraunum í ruslið. En þetta er samt alltaf jafn gaman og hlakka til þegar 31 (mis) velheppnuð jólakort liggja á borðinu tilbúin fyrir póstlagningu. :Þ




Ætla að segja þetta gott í bili:)
Hafið það gott:D

fimmtudagur, október 26, 2006

We´re all going on a Winter holliday;)

Halló og velkomin inn í veturinn:)

Búið að vera svoldið kalt undanfarið og greinilegt að Vetur Konungur er búinn að leysa haustið af, það snjóaði meira að segja smá í gærkvöldi upp á fjallinu okkar:)
Finnst samt eins og sumarið hafi verið í gær og maður er strax farin að hugsa um jólin enda er ekkert svo langt í þau ef maður pælir í því...

Um að gera að fá sér svona á köldum kvöldum með kertaljós;)

Við vorum að passa litlu fræknu hans Hafsteins síðustu helgi, Ingu Láru. Hún kom með Finding Nemo með sér og horfði á hana tvisvar. Einu sinni á föstudagskvöldið og svo um 8 leytið á laugardagsmorguninn. Litla skvísan vaknaði kl 7 á laugard. þrátt fyrir eftirfarandi sem haft var fyrir stafni á föstud.kvöldinu: Lita nokkrar blaðsíður prinsessulitabók, horfa 1x á Finding Nemo, hoppa í rúminu okkar í u.þ.b klukkutíma, elta Hafstein milli herbergja og láta Hafstein elta sig í u.þ.b. 40 mínútur, tala heilmikið um Nemo og hvernig hann væri á litinn, hjálpa okkur að setja saman ferðarúmið sitt og skoða allt sem henni fannst áhugavert í íbúðinni okkar:)
Okkur fannst þetta alveg rosa gaman, hún er svo mikið yndi. Svo fékkst hún ekki til að fara að sofa nema að lofa henni að við myndum fara í bíltúr daginn eftir og að ég ætlaði að naglalakka og setja hjartalaga steina á neglunar hennar. Þetta tvennt var síðan gert daginn eftir og svo var stubban svo þreytt að hún steinsofnaði með fínu neglunar sínar. Svo þegar við vorum að fara með hana heim þá vaknaði hún við það að ég tók hana úr bílstólnum og hún var varla búin að opna augun þá sagði hún: "Ekki fara úr bílnum, ég er í bíltúr". OOhhh hún er svo mikið krútt:)


Annars er nóg að gera næstu helgar og ekki hægt að kvarta yfir að maður hafi ekki nóg fyrir stafni. Fyrstu helgina í Nóv. fer Hafsteinn í herrakvölda-villibráð hjá Kiwanis og við stelpurnar sem sitjum eftir sem ég þekki ætlum að gera eitthvað sniðugt saman meðan þeir eru í einhverju kalla-matsjó dæmi, hehe!
Svo helgina þar á eftir erum við á leiðinni í sumarbústað og ætlum að hafa það kósí 2 saman. Smá afslöppun og ég ætla að eiga heima í heita pottinum, ahhhh:D
Þriðju helgina og fjórðu helgina í Nóv. eru svo jólahlaðborð báðar helgarnar. Fyrri helgina förum við með Bjarka og Rannveigu (meðeiganda Hafsteins og konunni hans) og seinni helgina þá er það vinahópurinn:)
Fyrstu helgina í Des. er svo jólaföndurs-saumó hjá okkur í Gaiunum. Við ætlum að hittast um hádegi og föndra eða mála eitthvað jólalegt. Ætlum allar að koma með eitthvað gotterý, s.s. smákökur, jólaöl og svoleiðis nammigott og hlusta á jólalög. Svo ætlum við að enda daginn með góðri máltíð saman:) Sömu helgi á sunnudeginum er einnig Aðventukvöld Fríkirkjunnar sem ég hef farið árlega síðan ég var c.a. 13 ára. Allaf svo gaman að byrja Aðventuna með þessari hefð:)

Þyrfti að fá mér einn svona;)

En þetta verður bara fjör, alltaf gaman að hafa nóg að gera. Finnst samt svo furðulegt að hugsa um hvað það er stutt í jólin. Fór í Hagkaup í hádeginu í dag og þegar maður gengur inn þá tekur bara við manni þvílikt magn af jólaskrauti og glingri, eins og maður sé komin inn í jólaland. Sumar búðir eru m.a. byrjaðar að skreyta:)
Talandi um búðir, er að hugsa um að labba út í IKEA um helgina og kíkja á nýju búðina fyrst að hún er komin eiginlega í bakgarðinn hjá okkur, get svarið það, ef ég píri augun þá get ég séð opnunartímann hjá þeim..hehehe...!

Hafið það gott í kuldanum;)

föstudagur, október 20, 2006

Muggaskot hjá fræga fólkinu:)

Fræga fólkið er nú víst ekki ósnertanlegt. Það gerir mistök eins og við hin. En þegar fræga fólkið gerir mistök þá taka ALLIR eftir því. Fræga fólkið er þekkt fyrir það að líta fullkomlega út og alls staðar sem það kemur er málningin óaðfinnanleg og klæðaburðurinn glæsilegur. En það er alveg ljóst að ef það gerir eitthvað af sér þá fær það ekki að hleypa stílistanum og snyrtidömunni inn á lögreglustöðin áður en fangamyndin (eða mugshot-ið) er tekið af þeim. Hérna eru nokkrar frægustu stjörnurnar á sínum muggaskotum, svo á myndum þar sem það er uppstrílað og fínt eins og við þekkjum þau venjulega og hvað það gerði til að fá lögregluna til að taka svona fallegar myndir af sér.




Yasmine Bleeth, Strandvarðar-gella, var handtekin eftir að hún keyrði á, féll á áfengismælaprófi og kókaín fannst í bílnum hennar. Hún var dæmd í 2ja ára skilorðsbundið fangelsi, 100 klukkustundir af samfélagsstörfum og sett í lyfjapróf.



James Brown, Konungur sálartónlist, var handtekin í Janúar 2004 fyrir heimilisofbeldi eftir að 33 ára gömul eiginkona hans hringdi í lögregluna og tilkynnti að Brown hefði hent henni í jörðina meðan þau rifust. Hún hlaut rispur og marbletti á hendur og mjaðmir. Brown var ekki dæmdur en borgaði $1,087 í refsingarskyni, sem er tæpur 80.000kr.



Robert Downey Jr. á líklega metið í að vera handtekin í flest skipti af fræga og fína fólkinu.
Þann 23 Júní 1996 var hann handtekin fyrir að aka undir áhrifum og hafa í förum sér Mexíkanskt svart tjöru heróín, krakk, kókaín og óhlaðna .357 Magnum byssu.

Þann 6 Nóvember var hann dæmdur í 3ja ára skilorðsbundið fangelsi. Hins vegar, aðeins ári seinna, þann 8. Desember 1997, var hann dæmdur sekur um að virða ekki skilorðsbundna fangelsið. 18 mánuðum seinna var Downey sendur í Corcoran State- fangelsið til að afplána 3ja ára fangelsið fyrir að virða ekki skilorðsbundna fangelsið í þriðja skipti þann 16. Júlí 1999. Honum var hins vegar sleppt fyrr vegna mistaka við dómsuppkvaðningu.

Downey var handtekin aftur í Palm Spring fyrir að hafa undir höndum kókaín og valíum og að vera undir áhrifum lyfja þann 25. Nóvember 2000.

Þann 24 Apríl 2001 var hann handtekin í Los Angeles fyrir að vera undir áhrifum lyfja eftir að hann fannst ráfandi í dal en hann var ekki kærður.

Downey hefur ekki upplifað aðrar opinberar handtökur síðan þá enda er þetta líklega meira en nóg fyrir greyið kallinn:)




Bill Gates, frægi tölvunördinn og einn af ríkustu mönnum heims, var handtekin í Albuaquerque árið 1977 fyrir að virða ekki biðskyldu og að keyra án ökuréttinda. Gates átti greinilega erfitt með að virða umferðarlög því árið 1975 var hann handtekin fyrir hraðakstur og að keyra án leyfis og árið 1989 fyrir grunsemdir um ölvun við akstur en ákærurnar voru seinna felldar.




Þann 27 Júní 1995 var hjartaknúsarinn Hugh Grant handtekin fyrir munnlegar samfarir við gleðikonuna Divine Brown í BMW-inum hans. Hann var sektaður um $1,180 (u.þ.b 80.000kr) og dæmdur í 2ja ára skilorðsbundið fangelsi. Þetta dýra framhjáhald leiddi einnig til skilnaðar milli hans og Megababurnar Elizabeth Hurley sem margir fýrar myndu sko gera margt fyrir.




Woody Harrelson, þekktastur sem seini gaurinn í Cheers, var handtekin árið 1982 fyrir óviðeigandi og truflandi hegðun þegar hann var að dansa á miðri götu. Hann var einnig ákærður fyrir mótþróa við handtöku eftir að hafa reynt að flýja lögregluna. Já, það er ansi slæmt þegar frægir menn mega ekki dansa á götum...




Árið 1972 var Mick Jagger, söngvari Rolling Stones, handtekin ásamt Keith Richards og þrem öðrum fyrir árás og hindrun réttlætis eftir að hafa lent í ryskingum við ljósmyndara. Hópurinn játaði sekt sína, var sleppt og ákærur felldar niður. Það er greinilega gott að vera frægur.




Tommy Lee, fyrrverandi/núverandi kærasti Pamelu Andersson (fer eftir vindátt hvort er) og meðlimur Rock Star Supernova, var handtekin í Október 1999 fyrir að taka þátt í hópærslingum meðan á tónleikum stóð í Greensboro Coliseum. Bassleikari Motley Crue, Nikki Sixx, átti að hafa gert kynþáttaathugasemdir við svartan vörð og lagði til að hópurinn myndi ráðast á hann. Sixx og Lee áttu svo að hafa helt bjór yfir vörðinn. Lee var dæmdur í 18 mánaða skilorðsbundið fangelsi.




Lil' Kim, söngkona/rappari sem gerði m.a. Moulin Rouge lagið með Pink, Aguilera og Missy Elliot, var handtekin í New Jersay í Júlí 1996 fyrir að vera með dóp undir höndum. Handtakan átti sér stað þegar lögreglan réðst inn á heimili Notorious B.I.G, rappara.

Í Apríl 2004, var Lil´kim ásökuð um að ljúga í rétti eftir að hafa vitnað um að hafa ekki tekið eftir tvem nánum vinum sínum í skotárás sem átti sér stað milli hennar klíku og andstæðingana, Capone-N-Noega. Þann 17. Mars 2005 var hún dæmd sek fyrir samsæri og að hindra réttlætið. Hún var dæmd í eins árs og eins dags fangelsi og rukkuð um $50,000, sem er c.a 3 milljónir í dag.




Matthew McConaughey, sem lék í t.d. Ed TV og Wedding planner, var handtekin á heimili sínu í Austin árið 1999 fyrir mótþróa við handtöku og að hafa undir höndunum maríjúana. Lögreglan var að fylgja eftir kvörtun vegna hávaða sem barst frá húsi hans. Samkvæmt lögregluskýrslum var komið að McConaughey nöktum og leikandi á bongó trommur með vini sínum þegar lögreglan bara að. Dópákæran var felld niður en McConaughey játaði sekt fyrir að brjóta ströng lög gegn hávaða í Austin og greiddi $50 í sekt. (u.þ.b 3500kr). Vel sloppið það:)




Al Pacino, lék m.a. í Guðfaðirnum, var handtekin árið 1961 fyrir að hafa í förum sér falið vopn en ákærurnar voru seinna felldar. Hann sagði lögreglunni að hann hafði verið á leiðinni í vinnuna þar sem hann þurfti byssu fyrir atriðið í myndinni. Hann er 21 árs gamall þegar myndin er tekin og strax komin með munn fyrir neðan nefið;)



Árið 1938 var hinn 23 ára gamli Frank Sinatra handtekin fyrir tælingu og hórdóm. Jebb, þú last rétt. Samkvæmt FBI-skýrslunum var undanfari handtökunar þess háttar að Sinatra ranglega lofaði ungri stúlku giftingu og átti svo samfarir við stúlkuna sem var þá einstæð kona með gott orðspor. Þetta var, samkvæmt kærunni, brotlegt gagnvart lögum. Ákæran var seinna felld þegar það kom í ljós að unga stúlkan var í raun gift á þessum tíma. Já, fólk reynir margt þegar frægt fólk á í hlut.


Já, það er margt sem maður veit ekki um fræga og ríka fólkið;)

Eigið góða helgi og ekki gera neitt sem verður þess valdandi að þið fáið svona fallegt mugshot af ykkur:D

mánudagur, október 16, 2006

Erla Vesturfari...

"Skutluðumst" í 6 tíma ferðalag vestur í Súðavík um helgina. Fórum á Fimmtudaginn með:

Mömmu og Pabba
Bróa
Föðurömmu og Afa
Bróður Pabba og konu hans og dóttur.

Mæli ekki með því að ef leggja á í ferðalag í 6 tíma að fara 5 í bíl. Fórum nefnilega á 2 stórum bílum út af færðinni (getur verið svoldið slæm á þessum tíma). Ég get svo svarið það, ég er rétt núna að fara að finna fyrir rassinum, hann er búin að vera sofandi síðan við lögðum af stað á fimmtudaginn, hehe!

En fyrir utan þéttpakkaðar ferðir fram og tilbaka þá var þetta hin besta ferð. Þegar við stoppuðum á Bifröst þá var byrjað að dimma og keyrðum svo restina í myrkri. Sáum geggjuð norðurljós og svoldið duló að keyra svona fáfarna vegi í myrkri.
Þegar við komum svo á Súðavík þá tók Dóra frænka mín á móti okkur með bakkelsi og gotterí en hún var ástæðan fyrir þessari ferð, vegna 40 ára afmæli hennar.
Fengum risastórt einbýlishús út af fyrir okkur. Það er gistiheimili venjulega en það var leigt bara fyrir okkar fjölskyldu. Húsið var staðsett í "gömlu Súðavík", s.s þeim hluta sem snjóflóðið féll á en í dag er nýja Súðavík búin að færast aðeins lengra þar sem engin snjóflóðahætta er. Tókum smá rúnt á Föstudeginum og sáum þá einu húsarústina sem eftir er úr snjóflóðinu. Það eina sem var eftir er grunnurinn. Okkur var sagt að það var það eina sem eftir var af húsinu eftir snjóflóðið. Okkur fannst það rosalegt, ekki smá kraftur. En gamla Súðavík er s.s í dag aðallega notuð undir orlofshús og gistiheimili á sumrin en allt lokað á veturna.
Súðavík er samt hálfgerður svefnbær. Sáum eiginlega engar manneskjur á ferð, það var ekki fyrr en við fórum út á Ísafjörð á föstudeginum að við sáum fólk á ferð:)


Fórum svo í fertugsafmæli hjá frænku á Laugardagskvöldinu. Vá, það var sko gaman. Ekta svona sveitaballa-fílingur í gangi og hljómsveitin spilaði bara svona oldí tónlist. Okkur unga fólkinu fannst þetta nú gott á tímabili en eldra fólkið var alveg í fílingnum. Þannig við skelltum í okkur bara dágóðum skammti af áfengi og þá hljómaði allt vel:D Veislustjórinn var alveg frábær og geðveikt fyndin gaur. Svo voru Pabbi og Bjarni bróðir hans með slide-show af Dóru frænku þegar hún var yngri og það var heavy fyndið. Sveitastjórinn kom líka með ræðu og kona veislustjórans var líka með fyndna ræðu. Hún "skaut" aðeins svona á manninn sinn en málið er s.s það að veislustjórinn og kona hans búa í sömu götu og Dóra frænka og það hefur tekið um sig smá hundaæði í götunni. Dóra frænka á chihuahua hund og 2 aðrir nágrannar hafa fengið sér litla hunda, ekki alveg eins litla og Gormur (hundurinn þeirra) en smáa þó. Dóri Draumur (veislustjórinn) fékk sér hins vegar Briard hund (sjá mynd að neðan) sem er risastórt ferlíki. Við sáum hann einn morguninn og þetta er frekar eins og smár hestur heldur en hundur. En punch-lineið við þetta var sem sagt það að hún (konan hans Dóra) er greinilega í vondum málum ef það er sama með hundana og er sagt með jeppana (s.s. stór jeppi = lítið ***** og að Dóra væri þá greinilega í MJÖG góðum málum, hehe! En Dóri Draumur var fljótur upp í pontu að reyna að koma með eitthvað come-back :)


Allavega, mjög skemmtilegt afmæli, mikið drukkið, hlegið og dansað:D
Lögðum svo af stað heim eftir smá kaffi hjá Dóru frænku og Axel á sunnadaginn. (Axel, maðurinn hennar Dóru frænku, er snilli í eldhúsinu og bakar beeeeestu kökur í heimi) nammi, namm. :Þ
Ferðin var frekar löng þó við stoppuðum eiginlega ekki neitt nema á Hólmavík þegar við áttum 2 lítra eftir af bensíninu. Það var mjög spennandi ferðin að Hólmavík, hvort við næðum þangað til að fylla á bílinn eða ekki:) Fórum yfir nokkrar heiðar sem farið var að snjóa á. Fyrsti snjór vetrarins hjá okkur og ekki fannst manni það spennó:( en já, sumarið er víst officially búið....
Og mikið var nú gott að komast heim með þinnkumat og í náttfötin, alveg best sko;)

En ætla að láta duga af þessu blaðri í bili:)

miðvikudagur, september 27, 2006

90´s nostralgía:)

Ég er í 90´s fíling þessa dagana. Er að hlusta á file sem ég fann sem heitir: The greatest 250 songs of the 90´s. Í tilefni þess ætla ég að taka smá "walk down memory lane":)


Byrjum á tískunni:

"Rachel-Hárgreiðslan"
Allir vildu fá hárgreiðsluna eins og Rachel í Vinum, enda er hún alltaf jafnt mikið inn í tískunni:)

Adidas-loftbuxurnar
Þessar sem voru með smellunum á hliðinni og loftuðu rosalega vel um leggina;)

Baby doll kjólar
Sérstaklega flott að vera í hljólabuxum undir;)

Bak-veski
Bakpokahugmyndin notuð fyrir lítil veski, hálfgerð bakpokaveski. Ekkert vesen sko!

Poka-buxur
Stórar pokalega buxur sem bæði stelpur og strákar földu sig í :)

Fiðrilda-klemmur
Komust í tísku seint á 90´s tímabilinu en litrík fiðrildi skreyttu hár margra kvenna á þeim tíma.

Hafnarboltahúfur
Sérstaklega vinsælt að hafa þær öfugar á höfðinu, eða á hliðinni. Rosa cool!

Tvöfalda skyrtan
Hvítur langerma bolur undir litaðri hnepptri skyrtu. Skyrtan átti síðan að vera óhneppt annars var það ekki flott sko:)

Hálf hjarta
Að vera með hálf hjarta um hálsinn var rosalega hipp. Talið er að þetta hafi byrjað með dulafulla hálf-hjarta-hálsmeninu hennar Lauru í Twin Peaks.

Smekkbuxur
Annað hvort gekk fólk í þeim með belti og létu "efri hlutann" hanga niður. Eða buxunar voru bara smelltar öðru megin og önnur hliðin látin hanga.

Göt
Allt sem hægt var að gata var gatað. Tungan, naflinn, augnbrúnin eða geirvartan, því óvenjulegra því flottara:)

Buffalo-skór
Need i say more:)

Flís
Flís efni komst í tísku, vesti, jakkar og þessvegna buxur.

Permanent
Já, Mariah Carrey kom síðu slöngulokkunum aftur í tísku.

Háir sokkar
Sokkar sem náðu alveg upp á læri. Mest vinsælt að vera í stuttu pilsi við.

Hárband
Aðallega hvít hárbönd voru mest inni.



Tónlistin: Þó þú hefur ekki heyrt eitthvað 90´s lag áður, þá heyriru bara að það sé 90´s tónlist. En hérna kemur það allra eftirminnilegasta og mest einkennandi fyrir þennan tíma:

The Power of Love með Celine Dion (Við stelpurnar grenjuðum þetta lag í frímó, ó je!)

U Can't Touch This með M.C. Hammer (Næstum því ein setning í öllu laginu en samt mest flott:)

Smells Like Teen Spirit með Nirvana (klassíkin)

Ice Ice Baby með Vanilla Ice (Mest svalast þó að lagið sé eiginlega hvíslað)

Killing Me Softly með Tha Fugees (Annað lag sem var gjörsamlega nauðgað í frímó;)

Groove is in the Heart með dee-lite (Myndbandið er náttúrulega flottst!)

It's All Coming Back með Celine Dion (Díjon-sinnepið klikkar ekki:)

I Always Love You með Whitney Houston (Munið eftir Bodyguard? omg!)

Coffee and TV með Blur (svona seinni hluti 90´s tímabilsins þar sem allir voru chillaðir)

Wonderwall með Oasis

Boom (Shake the Room) með DJ Jazzy Jeff + The Fresh Prince

Macarena með Los Del Mar (Kunnið ekki ennþá dansinn, i know i can;)

Scatman með Scatman (Aldrei heyrt mann syngja eins og sá í þessu lagi)



Tökum svo góða frasa úr þáttum sem voru allra vinsælastir á þessu tímabili:

Store clerk: "Hey, you gonna pay for that?"
Butt-Head:
"I guess."
Store clerk:
"Yeah, you guessed right!"
Butt-Head: "Oh yeah? What do I win?"
Úr: Beavis & Butt-Head

Martin: "This is Eddie. We like to call him 'Eddie Spagetti'"
Daphne:
"Why, does he like pasta?"
Martin:
"No, he's got worms."
Úr: Frasier

Frasier: "Don't you believe in second chances?"
Martin: "I did...then we had Niles."
Úr: Frasier

Joey: "OK, now, before we can be roommates, I have to make sure we can get along. So I'm gonna say a word, and you say the first thing that comes into your mind. OK?"
Prospective roommate hottie:
"OK."
Joey:
"Pillow..."
Prospective roommate hottie:
"Fight?"
Joey (with smile):
"Good! Now, G..."
Prospective roommate hottie:
"String?"
Joey (with smile and very wide eyes):
"Niiiice!!! Now, doggy..."
Prospective roommate hottie:
"Kitten?"
Joey:
"Oh! So close. Well, sorry it didn't work out, hope you find what you're looking for..."
Úr: Friends

Chandler: "If I turn into my parents, I'll either end up an overage blond chasing after 20-year-old boys...or I'll end up like my mom."
Úr: Friends

Kramer: Newman's threatening to jump off the building again.
Jerry:
So what did you say to him?
Kramer:
I told him to wave when he passes my window.
Úr: Seinfeld

Apu: "HEY! HEY! I have asked you nicely NOT to mangle my merchandaise. You leave me no choice but to ask you nicely again."
Úr: The Simpsons

Mr. Burns: "Shouldn't you be at work?"
Homer:
"Uh, yes, sir, Mr. Burns, sir..."
Mr. Burns:
"Well, then, get back to wherever it is you work, whoever you are!"
Úr: The Simpsons

Homer (after starting foreplay with Marge): "You're thinking about me, right?"
Marge:
"Oh, Homey. Of course I am! Are you thinking about me?"
Homer:
"I will now!"
Úr: The Simpsons


Jebb, bara snilldar áratugur sem á sannalega skilið uppreisnar æru:) Endilega bætið einhverju við ef ykkur dettur eitthvað sniðugt í hug:)


mánudagur, september 25, 2006

Hraðann eða lífið?...

Ég bara spyr vegna frétta sem maður hefur séð undanfarið, dauðsfalla ungs fólks í umferðinni á árinu og bara af fávisku...
Er það í tísku að slasa sig illa í umferðarslysi, verða að grænmeti og ennþá flottara að drepa sig, þess vegna aðra?


Er mottó ungs fólks í dag:
Lifum hratt og deyjum ung?

Mér finnst þetta hræðilegt!


Sjáið bara þessa frétt:
http://www.mbl.is/mm/frettir/innlent/frett.html?nid=1225369
Sjáið svo neðst í fréttinni: "Á þriðja tug ökumanna teknir á einu kvöldi fyrir hraðakstur!!! Og það bara í RVK.!"


Ég vil bara segja: Áður en þú pælir í því hversu cool þú ert á nýja hraðskreiða bílnum þínum með nýja ökuskírteinið á 120-150 km hraða, hugsið þá hversu cool þið verðið, bundin við hjólastól og ósjálfbjarga það sem eftir er ævinnar og þess vegna með dauða vinar ykkar á samviskunni. Já, það er sko cool!


Og við hin, sem erum komin með reynslu í umferðinni: Látum ekki "okkar miklu reynslu" blekkja okkur, við getum ekki allt og við erum ekki ósnertanleg!

mánudagur, september 18, 2006

I spend my days....in a haze;Þ

Hellú:)

Mjög skemmtileg og afslappandi helgi að baki. Þreif alla íbúðina á Laugardaginn (kannski ekki svo afslappandi, en mjög ánægjulegt að verki loknu). Eina sem situr á hakanum núna er þvottaherbergið en það verður ráðist á það næstu helgi:) Eftir að ég var búin að þrífa íbúðina, með góðri hjálp frá Hafsteini, þá fór ég að undirbúa heita rétti og góðgæti. Hafsteinn hélt nefnilega upp á afmælið sitt á Laugardagskvöldið með smá fjölskyldu-kaffiboði. Það var mjög kósí og gaman:)
Sunnudeginum var eytt í algjöra leti og afslöppun. Fórum svo í kjötsúpu til Tengdó um kvöldmatarleytið. Ekki smá gott að fá svona góða kjötsúpu á köldu sunnudagskvöldi, nammi namm. Tókum svo DVD og kúrðum okkur fyrir framan TV.

Í morgun fór ég svo í klippingu. Ég er ekki smá ánægð með hárið á mér núna. Var alveg að klepra á því, var farin að velta fyrir mér fá mér Magna-klippingu...já eða Felix-klippingu. En af einhverjum ástæðum hætti ég við það, held að það hafi verið af því að það er ekki til rafmagnsrakvél heima hjá okkur:) hehe...


Hinir "sköllóttu" og fallegu:)

Annað kvöld verður Frænku-saumó hjá mér fyrir gellurnar í Gai-unum:) Verður örugglega mjög skemmtilegt og hlakka mjög mikið til:)

En já, þetta er svona það sem ég hef verið að bralla og mun brallast næstu daga...

Ta, ta....

þriðjudagur, september 12, 2006

Riddle me this, riddle me that...

Fann þessar spurningar á netinu. Mjög skemmtilegar spurningar en kannski erfitt að svara þeim:)


Hvað telja kindur þegar þær geta ekki sofnað?


Eru haldin kaffihlé í teverksmiðjum?

Af hverju kallast maður sem talar dónalega við konu karlrembusvín
en kona sem talar dónalega við karlmenn fær borgað á mínútuna?

Hver er hraði myrkursins?

Af hverju er framleitt Whiskas með kjúkling, Whiskas með nautakjöti, Whiskas með fiski,
en ekki Whiskas með mús?

Ef ekkert festist við Teflon-húð, hvernig er hún þá fest við pönnuna?

Svarti kassinn í flugvélum lifir öll slys af, af hverju er flugvélin sjálf ekki gerð úr sama efni?


mánudagur, ágúst 28, 2006

You yankie doodle....How you doing?

Þá er míns komin frá Amjeríkunni. Fórum þangaði í vinnu/skemmtiferð með meðeiganda Hafsteins og konunni hans, Bjarka og Rannveigu. Vorum í Minneapolis sem er fallegasta stórborg sem ég hef komið í. Rosalega græn borg, tré allstaðar og mikið lagt upp úr fegurðarskyni. Gosbrunnar, listaverk og litlir garðar á öllum götuhornum og fólkið þar er rosalega vinarlegt og opið. Gistum á rosalega flottu hóteli, Millennium Hótel og nutum þess algjörlega að vera þar, room service og allur pakkinn:) Tókum engar myndir í ferðinni (gleymdum okkur algjörlega) en stal nokkrum af netinu. Þessi hérna fyrir neðan er einmitt rétt hjá hótelinu okkar, fórum einmitt upp eftir þessari beygju (þar sem stóri hvíti bíllinn er að fara) þegar við vorum að koma að hótelinu, en það er aðeins lengra til vinstri á myndinni.


Stóra byggingin (önnur til vinstri, þessi stærri með svarta toppnum) er rosalega falleg á kvöldin. Byggingin hýsir eitthvað skrifstofuhúsnæði fyrir eitthvert fyrirtæki en þeir fengu í gjöf 2-3 efstu hæðirnar. Á daginn eru hæðirnar bara svartar eins og sést á myndinni en á kvöldin þá lýsast þær upp með allskonar litum. Þegar við vorum úti þá var það rautt og gult. En okkur var sagt að t.d á 4.júlí þá verða litirnir bláir, hvítir og rauðir. S.s litirnir tákna þann tíma eða árstíð líðandi stundar. Borgin er falleg á daginn og á nóttunni eins og sést á þessari mynd hér að neðan:)


Mest allur tíminn fór í að versla, sérstaklega í MOA (Mall of Amerika). Þetta er eins og að maður tæki Smáralindina, margfaldaði hana með fjórum, setti síðan tívólí í miðjuna og setti svo þrjár aðrar eins hæðir ofan á fyrstu hæðina. Það er allt til þarna inni, bara hvað vantar þig. Urðum samt fyrir smá vonbrigðum, héldum að þetta væri rosalega ódýrt og bjuggumst við að Tívóíið væri eitthvað rosalegt. Það var nú samt ódýrara að versla þarna heldur en heima, enda keyptum við næstum því allar jólagjafirnar, föt og skó handa sjálfum okkur og nokkra cd , dvd og græjur. Einnig keypti ég föt sem að bróa vantaði fyrir skólann, 2 boli, 2 peysur og skó (frá billabong, DC, Volcom og öðrum flottum merkjum) fyrir aðeins 15.000 kr. Hérna heima hefðu bara skórnir og einn bolur kostað það sama.


Í MOA sáum við einnig marga skemmtilega hluti og fólk. Ekta bandaríska rednecks, fólk í stuttbuxum eða jafnvel heitu outfit-unum sem voru úr bandaríska fánanum og rosalega mikið af konum sem klæddust þessum típísku skálma-afklipptu galla-stuttbuxum. Höldum því alveg fram að það sé þjóðartíska bandarískra kvenna: galla-stuttbuxurnar og bleikur bolur. Ég og Rannveig urðum svo þess heiðurs aðnjótandi að hitta raunverulega Celebrety-stjörnu. Sátum á Starbucks og þá sáum við hana, enga aðra en Lassie, hehe. Vissum ekkert hvað gekk á, fólk stóð í þessari svakaröð og svo kom Lassie upp á svið og stillti sér upp við hliðina á stól. Fólkið síðan settist í stólinn, fékk að klappa henni og gat síðan keypt mynd af herlegheitunum. Omg, ameríkanar og idol-dýrkun þeirra :Þ


En við nýttum tímann líka í annað en að versla. Fórum t.d á State Fair en það er svona ekta bandarísk útihátíð. Alveg rosalega stórt svæði sem er tileinkað undir þessa árlegu skemmtun og þú finnur alveg örugglega eitthvað þar til að bralla. Tívólí, leikir, dýrasýningar, indíánasýningar, básar með alls konar munum frá mismunandi þjóðum sem þú gast verslað og alls konar matarbásar. Djúpsteikur krókódíll og stór bakki með kartöfluflögum og einhverri ógó sósu var t.d. á boðstólum en "einhver matur á pinna" var það allra vinsælasta þarna. Jebb, þú gast fengið allt "on a stick". Cheese on a stick, hamburger on a stick, meat on a stick og meira að segja Pizza on a stick og djúpsteikt Twinkies/Mars/Snickers on a stick var í boðinu. Þú gast síðan keypt þér bol sem á stóð: State fair: I ate something on a stick!. Okkur fannst nú þessi matur ekki sá girnilegasti en fundum þarna eitthvern Pizza stað til að borða á. Þegar við tókum svo Taxa heim þá spurði leigubílstjórinn hvort við hefðum ekki borðað eitthvað á pinna og við sögðum nei. Hann var nú hissa og sagði að til þess væri nú State fair og um leið og einhver myndi uppgötva hvernig þeir kæmu bjór á pinna þá myndi það tröllríða öllu:D


Eitt kvöldið, eftir að hafa borðar á æðislegum veitingastað, Manny´s, þá sáum við svona hestakerru. Þá gat maður sest upp í og fengið smá svona ferð um svæðið sem og við gerðum. Stelpan sem stýrði hestinum bauðst síðan til að svara öllum spurningum ef við hefðum þær og fræddumst aðeins um miðbæinn. Svo nutum við bara ferðarinnar í hestakerrunni og það var rosalega spes að sitja í svona kerru í rólegheitum á götu sem yfirleitt er keyrð á meiri hraða. Maður varð alltaf svo hissa hversu róleg borgin varð á kvöldin. Meðan strákarnir voru svo að borga þá gekk ég aðeins að hestinum og hann var ekki smá stór og fallegur, miklu stærri heldur en okkar íslenski hestur. Þegar hann hreyfði höfuðið í áttina til mín þegar ég kom að honum þá brá mér ekki smá því bara sjálft andlitið er risastórt. Hann var svipaður á litinn og þessi að neðan en kerrann var reyndar svört. Annars gæti þetta alveg verið mynd sem hefði verið tekin af okkur:D
Jæja, ætla að hætta þessu ritgerðarrausi:) Gott að vera komin heim og þó að þessi ferð hafi verið yndisleg í alla staði þá held ég haldi mér á Íslandi í dágóðan tíma núna eftir þetta ferðalagabrölt á manni:)

Over and out:Þ